
Tandur hf.
Fyrirtækið Tandur var stofnað í Reykjavík þann 9. ágúst 1973.
Starfsemi fyrirtækisins snýst um framleiðslu, sölu og dreifingu á hreinlætisvörum og búnaði til fyrirtækja og opinberra stofnana. Samhliða framleiðslu, sölu og innflutningi er mikil áhersla lögð á faglega og framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf til viðskiptaaðila.
Viðskiptavinum Tandur eru boðnar heildarlausnir varðandi þjónustu og vörur til hreinlætis. Má þar nefna gerð þrifaáætlana, uppsetningu sjálfvirkra skömmtunarbúnaða, reglulegt þjónustueftirlit, fræðslu, ráðgjöf og fjölda vöruflokka sem hafa með hreinsun og hreinlæti að gera.

Framtíðarstarf á lager, í framleiðslu og útkeyrslu
Tandur leitar að hraustum, sjálfstæðum og samviskusömum einstaklingi í fjölbreytt og skemmtilegt starf á lager og í framleiðslu.
Verkefnin felast í framleiðslu á vörum, tiltekt í vöruhúsi, afgreiðsla pantana, útkeyrslu og önnur tilfallandi störf.
Ef þú fílar að taka til hendinni, vinna í góðum hópi og sjá árangur dagsins strax, þá gætir þú verið akkúrat manneskjan sem við leitum að 💪
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framleiðsla hreinsiefna
- Tiltekt og frágangur vara
- Afgreiðsla pantana
- Útkeyrsla
- Önnur almenn lager- og framleiðslustörf
Menntunar- og hæfniskröfur
- 20 ára og eldri
- Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Aukin ökuréttindi C
- Hreint sakarvottorð
- Stundvísi og frumkvæði í starfi
- Góð þjónustulund og samskiptahæfni
- Reynsla af lager- eða framleiðslustörfum er kostur
- Lyftarapróf er kostur
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegisverður
- Heilsustyrkur
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur24. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hestháls 12, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Meiraprófsbílstjórar
EAK ehf.

Fjölbreytt sumarstörf við malbikun, fræsingar, framleiðslu og akstur
Colas Ísland ehf.

Aðstoðarmaður á lager
Axis

Sumarstörf hjá Samskipum á Akureyri
Samskip

Meiraprófsbílstjóri - Akureyri
Terra hf.

Sumarstörf í vöruhúsi Samskipa
Samskip

Lagerstarfsmaður óskast
Kemis ehf.

Eftirminnilegt sumar í vændum á lager
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Bílstjóri/Shuttle service
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Lagerstarfsmaður óskast.
Parki

Meiraprófsbílstjóri á Akureyri
Samskip

Meiraprófsbílstjóri á Egilsstöðum
Samskip