
Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyinga sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Símans eru skapandi, fagleg og árangursdrifin.

Fyrirtækjaráðgjafi Símans
Við leitum að metnaðarfullum og öflugum einstaklingi með góða þjónustulund, samskipta- og skipulagshæfileika til að ganga til liðs við fyrirtækjaráðgjöf Símans. Fyrirtækjaráðgjöf veitir þjónustu og ráðgjöf um fjölbreyttar vörur og þjónustur til núverandi og nýrra viðskiptavina Símans á fyrirtækjamarkaði. Í starfinu felast mikil samskipti við viðskiptavini Símans sem og samstarfsfólk þvert á svið félagins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka, skráning, forgagnsröðun og úrvinnsla beiðna og pantana í takt við þjónustustefnu Símans
- Svara fjölbreyttum fyrirspurnum frá viðskiptavinum fyrirtækjasviðs, öll almenn þjónusta, ráðgjöf og afgreiðsla gegnum síma, tölvupóst og netspjall
- Greina og leysa vandamál hjá viðskiptavinum eða koma í réttan farveg og fylgja eftir úrlausn
- Svörun verðfyrirspurna, tilboðsgerð og skráning sölutækifæra
- Stuðningur og þjónusta við önnur verkefni teymisins og samstarfsfólk
- Önnur tilfallandi verkefni og breytingar tengt umbótum, þróun starfs og starfsumhverfis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund, jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Almenn tölvukunnátta. Góð þekking á CRM kerfum eins og Salesforce
- Frumkvæði og samviskusemi
- Nákvæmni, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð
- Íslensku- og enskukunnátta
- Hæfni til að takast á við breytingar og tileinka sér nýja færni
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Afgreiðslu og sölufulltrúi - Keflavík
Camper Iceland

Sérfræðingur í þjónustu og upplifun
APRÓ

Product Manager
Arctic Adventures

Sölu og markaðsmál - hlutastarf
Ráðlagður Dagskammtur

Söluráðgjafi - fyrirtækjalausnir Creditinfo
Creditinfo

Starfsmaður í gleraugnaverslun Eyesland Kringlunni
Eyesland Gleraugnaverslun

Kúnígúnd og Ibúðin - Fullt starf
Kúnígúnd

Sölumaður – Signa / Fást / Ásborg
Signa ehf

Söluráðgjafar í hlutastarfi óskast í verslanir Rammagerðarinnar.
Rammagerðin

Sölufulltrúi/Starfsmaður fyrir heildverslun/verslun fullt starf
Gullskógar

Sölufulltrúi í verslun - Sumarstarf
Smiðjan Fönix ehf.

Söluráðgjafi í stóma- og þvagleggjaþjónustu
Eirberg - Stuðlaberg heilbrigðistækni