
Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyinga sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Símans eru skapandi, fagleg og árangursdrifin.

Viðskiptastjóri lykilviðskiptavina á fyrirtækjasviði
Síminn leitar að metnaðarfullum og öflugum viðskiptastjóra lykilviðskiptavina fyrirtækjasviðs með brennandi áhuga sölu og þjónustu. Starfið felur í sér að efla núverandi viðskiptasambönd og koma auga á ný viðskiptatækifæri. Viðkomandi þarf að taka ábyrgð á eigin verkefnum, vera í góðum samskiptum við viðskiptavini Símans og tryggja framúrskarandi upplifun þeirra.
Um er að ræða spennandi starf í teymi Sölu og Viðskiptastýringar á fyrirtækjasviði Símans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að stýra og efla núverandi viðskiptasambönd
- Greining þarfa viðskiptavina og ráðgjöf um lausnir
- Heimsóknir og stöðufundir með viðskiptavinum
- Samninga- og tilboðsgerð
- Greiningar á viðskiptavinahópi
- Ábyrgð á upplifun lykilviðskiptavina og eftirfylgni mála
- Samvinna við starfsfólk og teymi innanhúss til að tryggja þjónustugæði
- Skráning og utanumhald mála í CRM kerfi
- Önnur tilfallandi verkefni og breytingar tengt umbótum, þróun starfs og starfsumhverfis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af viðskiptastýringu á fyrirtækjamarkaði
- Áhugi og þekking á íslensku atvinnulífi
- Þjónustulund, lausnamiðuð hugsun og framúrskarandi samskiptahæfni
- Drifkraftur, fagleg vinnubrögð og jákvætt viðmót
- Hæfni til að takast á við breytingar og tileinka sér nýja færni
- Þekking á fjarskipta- eða tæknilausnum er kostur
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSjálfstæð vinnubrögðViðskiptasamböndÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Forstöðumaður sölu og viðskiptastýringar á fyrirtækjasviði Símans
Síminn

Sérfræðingur á fjármálasviði
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Sérfræðingur í opinberum innkaupum og samningsstjórnun
Umhverfis- og skipulagssvið

Spennandi störf við skatteftirlit
Skatturinn

Sölufulltrúi
GreenFish

Sérfræðingur í áhættustýringu og kostnaðargreiningum
Umhverfis- og skipulagssvið

Deildarstjóri fyrirtækjaþjónustu
Sýn

Vöru- og verkefnastjóri húðmeðferða
Húðlæknastöðin

Vörumerkjastjóri
Nathan hf.

Verslunarstjóri fyrir Curvy og Stout
Curvy verslun

Viðskiptastjóri
Fortinet á Íslandi

Framkvæmdastjóri
Voltus