GreenFish
GreenFish
GreenFish

Sölufulltrúi

GreenFish er nýsköpunarfyrirtæki sem útbýr gervigreindarlausnir fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi. Félagið er leiðandi á sviði spálíkana í sjávarútvegi og framleiðir sérsniðin gervigreindarlíkön sem spá fyrir um staðsetningu afla, magn, gæði og aflasamsetningu á hafkorti.

Markmið okkar er að aðstoða útgerðir við að auka skilvirkni, draga úr eldsneytisnotkun og hámarka verðmæti aflans. Við vinnum með framsæknum útgerðum á heimsvísu og erum í örum vexti.

Vegna þessa erum við á höttunum eftir öflugum sölufulltrúa sem mun starfa náið með sölustjóra og gegna lykilhlutverki í framkvæmd og þróun sölustefnu fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna náið með sölustjóra við framkvæmd og þróun sölustefnu GreenFish
  • Byggja upp og viðhalda samböndum við útgerðir og aðra samstarfsaðila
  • Stýra söluferlum frá fyrstu kynningu til undirritunar, leiða innleiðingu nýrra viðskiptavina og semja um endurnýjanir samninga
  • Miðla á skýran hátt rekstrarlegum og fjárhagslegum ávinningi af vöruframboði GreenFish
  • Styðja viðskiptavini við innleiðingu og notkun lausnarinnar
  • Greining markaðstækifæra og þátttaka í mótun viðskiptastefnu
  • Virk samvinna við vöru-, rekstrar- og tækniteymi í þróun lausna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölustjórnun, B2B sölu, viðskiptaþróun eða sambærilegum hlutverkum, helst innan sjávarútvegs eða á sviði hugbúnaðar
  • Þekking á og reynsla af sjávarútvegi mikill kostur
  • Vilji til að ferðast og kynnast nýjum viðskiptavinum og mörkuðum
  • Sterk samskipta- og samningahæfni
  • Greiningarhæfni og skilningur á viðskiptaumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og drifkraftur
  • Menntun á sviði viðskipta, sjávarútvegs eða markaðsmála er kostur
  • Færni í bæði íslensku og ensku (spænskukunnátta mikill kostur)
  • Reynsla af CRM-kerfum (t.d. HubSpot, Salesforce eða sambærilegum) 
Fríðindi í starfi
  • Samkeppnishæf laun með möguleika á frammistöðutengdum bónusum
  • Einstakt tækifæri til að mynda tengsl í og kynnast alþjóðlegum sjávarútvegi
  • Árlegur heilsustyrkur
  • Tækifæri til þess að hafa bein áhrif á sölu og þróun ört vaxandi gervigreindarfyrirtækis
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur19. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
SpænskaSpænska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Grandagarður 16, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.AlþjóðaviðskiptiPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Email markaðssetningPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HubSpotPathCreated with Sketch.MailchimpPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.MarkaðsrannsóknirPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.ViðskiptasamböndPathCreated with Sketch.VöruframsetningPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar