
Umhverfis- og skipulagssvið
Á Umhverfis og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem eiga að auðga mannlífið í borginni.
Nánar má lesa um sviðið hér: https://reykjavik.is/umhverfis-og-skipulagssvid
Starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs býr yfir einstakri fagþekkingu í þeim málaflokkum sem sviðið sinnir og gegnir lykilhlutverki í því að gera Reykjavík að enn betri borg. Leiðarljós sviðsins eru aukin lífsgæði í Reykjavík með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg.

Sérfræðingur í áhættustýringu og kostnaðargreiningum
Skrifstofa fjármála á umhverfis- og skipulagssviði óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf sérfræðings við áhættustýringu og kostnaðargreiningu. Skrifstofan fer með leiðandi hlutverk í gerð og innleiðingu verkferla er varða fjármál og eftirfylgni þeirra. Styður við fjármál, innkaup og áhættustýring sviðsins svo unnt sé að skapa öruggt og traust fjárhagslegt starfsumhverfi. Veitir stjórnendum og starfsfólki upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð varðandi fjármál og innkaup svo sem áætlanagerð, fjárhagsbókhald, verkbókhald, innheimtu, uppgjör, innkaup, samningsstjórnun, áhættustýringu og sinna innra eftirlit eins og við á. Um nýtt starf er að ræða, næsti yfirmaður er deildarstjóri innkaupa og samningsstjórnunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hafa virkt eftirlit með áhættum í rekstri sviðsins.
- Sinna kostnaðargreiningu m.t.t. samningsbundinna verkefna og útboðsáætlana.
- Utanumhald áhættustýringar á sviðinu, þ.m.t. frávikaskráningu og gerð rótargreininga.
- Fylgjast með kostnaði og áhættu vegna útboðsskyldra samninga.
- Byggja upp miðlægan gagnagrunn og tryggja að kostnaðaráætlanir séu uppfærðar og rekjanlegar.
- Gerð verkferla og innleiða verklag sem styður við framkvæmd innan sviðsins.
- Veita ráðgjöf og hafa virkt eftirlit í samræmi við reglur borgarinnar.
- Önnur verkefni tengd fjármálum og daglegum rekstri skrifstofunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi á s.s. í viðskiptafræði, hagfræði, verk- eða tæknifræði.
- Framhaldsmenntun æskileg.
- Þekking og reynsla á sviði kostnaðareininga og áhættustýringar.
- Reynsla af opinberum innkaupum kostur.
- Framúrskarandi samskipta og samstarfshæfni, drifkraftur, frumkvæði og metnaður.
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð, framsýni og lausnarmiðuð hugsun.
- Góð færni í greiningu tölfræðiupplýsinga og framsetningu flókinna gagna.
- Góð almenn tölvuþekking og kunnátta til að nýta upplýsingakerfi sem stjórntæki.
- Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti og geta til að miðla upplýsingum á skýran og greinargóðan hátt.
- Tungumálaviðmið: C1 í íslensku og B2 í ensku skv. evrópska tungumálarammanum.
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur12. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri lykilviðskiptavina á fyrirtækjasviði
Síminn

Sérfræðingur í samningastjórnun (e. Contract Manager)
Nýr Landspítali ohf.

Sérfræðingur á fjármálasviði
LSR - Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Sérfræðingur í opinberum innkaupum og samningsstjórnun
Umhverfis- og skipulagssvið

Spennandi störf við skatteftirlit
Skatturinn

Sérfræðingur í þróun mannvirkjaskrár
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Verkefnastjóri fasteignareksturs og viðhalds
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Viltu beisla vindinn? Verkefnastjóri í þróun vindorku
Landsvirkjun

Vöru- og verkefnastjóri húðmeðferða
Húðlæknastöðin

Vörumerkjastjóri
Nathan hf.

Forstöðumaður hönnunardeildar
Vegagerðin

Veitustjóri Bláskógaveitu
Bláskógabyggð