Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Starfsmaður í Gæðasetri | Össur

Í Gæðasetrinu vinnum við að því að tryggja að tæki sem sjúklingar treysta á séu örugg, áreiðanleg og í hæstu gæðum.

Sem starfsmaður í Gæðasetrinu tekur þú þátt í verkefnum sem hafa bein áhrif á líf og heilbrigði notenda um allan heim. Í þessu hlutverki verður þú mikilvægur hluti af daglegri starfsemi Gæðasetursins og styður við fjölbreytt verkefni sem snúa að prófunum, greiningum og gæðamálum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Framkvæmd fjölbreyttra prófana á sílikoni, efnum og vörum  

  • Söfnun, skráning og greining gagna; miðlun niðurstaðna til hagsmunaaðila  

  • Stuðningur við prófunarteymi við þróun, endurskoðun og staðfestingu prófunaraðferða 

  • Aðstoð við almenna prófunarvinnu í Gæðasetri til að tryggja rekstraröryggi og skilvirkni 

  • Greining kvörtunarmála fyrir fjölbreyttar vörur  

  • Samstarf við M&O, R&D og gæðateymi við úrlausn kvartanamála og lærdóm úr vettvangi  

  • Endurskoðun og aðlögun eldri prófunaraðferða til að bæta skilvirkni og áreiðanleika  

  • Stuðningur við gæðamál og rekjanleika í framleiðslu og prófunarumhverfi  

  • Markviss vinna til að draga úr kvörtunum og tryggja stöðugt hágæði  

  • Þátttaka í innri umbótaverkefnum og öðrum tilfallandi verkefnum innan Gæðasetursins  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í iðngreinum, iðntækni, tæknifræði, efnis-/efnafræði eða sambærilegu sviði  

  • Reynsla af efnis-, eðlisfræðilegum eða vélrænum prófunum er kostur  

  • Þekking eða reynsla af efnisgreiningu, prófunarbúnaði eða mælitækjum er æskileg  

  • Grunnfærni í gagnavinnslu og greiningu (t.d. Excel eða sambærileg verkfæri)  

  • Skipulagshæfni, nákvæm vinnubrögð og fagleg nálgun  

  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna með ólíkum teymum  

  • Góð enskukunnátta 

Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur   

  • Samgöngustyrkur   

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir   

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat  

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf  

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur   

  • Sveigjanlegur vinnutími 

  • Starfsþróun 

  • Öflugt félagslíf 

Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur12. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.IðnfræðingurPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Tæknifræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar