
Rafal ehf.
Rafal er leiðandi í þróun, framleiðslu og uppbyggingu raforkuinnviða með yfir 40 ára reynslu í faginu. Við sérhæfum okkur í hönnun, smíði og samsetningu hátæknilausna, þar á meðal tengivirkja, dreifistöðva, spenna, ljósleiðaraneta, snjalllausna og götulýsingar fyrir veitu og orkufyrirtæki, stóriðju og sveitarfélög. Við erum vel búin sérhæfðum búnaði og tökum að okkur bilana- og ástandsgreiningar auk prófana fyrir rafveitur.
Í dag starfa um 150 starfsmenn. Rafal býður upp á traustan og dýnamískan vinnustað þar sem vöxtur og velferð starfsfólks er höfð að leiðarljósi.

Deildarstjóri verkefnastofu Fuse
Við leitum að jákvæðum og áhugasömum leiðtoga í starf deildarstjóra verkefnastofu í fullt starf. Starfið heyrir undir rekstrarstjóra.
Deildarstjóri ber ábyrgð á framkvæmd verkefna Fuse, frá því verk berst úr sölu þar til því lýkur, og að þau séu unnin samkvæmt öryggisreglum félagsins.
Við leitum að einstaklingi sem kemur með hugmyndir að lausnum, þorir að hugsa út fyrir rammann og vill taka virkan þátt í stöðugum umbótum á verklagi og áætlanagerð. Starfið er nýtt og í þróun. Deildarstjóri fær tækifæri til að byggja upp og leiða teymið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tekur við verkum, úthlutar þeim til verkefnastjóra og tryggir að mönnun verkefna sé skipulögð tímanlega
- Yfirumsjón með verkefnastýringu verkefna
- Samþykkir verkáætlanir, fylgist með að þær standist og yfirfer framvinduskýrslur til verkkaupa
- Heldur utan um samninga við undirverktaka og samræmir verk, tímasetningar og upplýsingaskipti við þá
- Fylgist með kostnaði, tekjum og greiðsluflæði verkefna
- Þátttaka í þróun ferla og umbótastarfi innan Fuse
- Tryggir að öryggisstöðlum og innri verklagsreglum Fuse sé framfylgt
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. iðnmenntun, tæknifræði eða verkfræði
- Vottun eða gráða í verkefnastjórnun, t.d. PMP eða IPMA, eða reynsla af stýringu stórra verkefna er æskileg
- Reynsla af stjórnun og mannaforráðum
- Reynsla af verkefnastjórnun, áætlanagerð og kostnaðareftirliti
- Góð tölvufærni og reynsla af Jira eða sambærilegum kerfum
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
- Reynsla úr orku-, mannvirkja- eða gagnaversgeiranum er kostur
Fríðindi í starfi
Kostir við að starfa hjá Fuse
- Vandað og öruggt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að starfa við spennandi og krefjandi verkefni
- Góður starfsandi og stuðningur innan teymisins
- Niðurgreiddur hádegisverður
- Íþróttastyrkur
- Árlegar heilsufarsmælingar
Ef þú vilt taka þátt í að móta nýtt félag í ört vaxandi iðnaði hvetjum við þig til að sækja um, óháð kyni.
Auglýsing birt29. nóvember 2026
Umsóknarfrestur13. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hringhella 9, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Umsjónarmaður íþróttamannvirkja
Reykhólahreppur

Sérfræðingur í stýri- og sjálfvirknikerfum
Samherji fiskeldi ehf.

Viðhaldsstjóri hjá Víking brugghús
Víking Brugghús CCEP á Íslandi

Rafvirki
Olíudreifing þjónusta

Sölustjóri vöruflokka
Steypustöðin

Machine Designer
Embla Medical | Össur

Tæknifólk í brunaviðvörunarkerfi
Securitas

Rafvirkjar / Electricians Reyðarfjörður
VHE

Viltu umbreyta flóknum greiningum í hagnýtar ákvarðanir?
Keflavíkurflugvöllur | Isavia

Verkstjóri / verkefnastjóri í byggingarframkvæmdum
Landris Byggingar ehf.

Rafvirki óskast
Rýmd ehf

Rafvirki - Eldisgarður
Samherji fiskeldi ehf.