

Rafvirki - Eldisgarður
Taktu þátt í rekstri tæknivædds landeldis á Reykjanesi.
Eldisgarður er landeldisstöð Samherja fiskeldis á Reykjanesi í auðlindagarði HS orku. Við leitum að öflugum og metnaðarfullum rafvirkja til að taka þátt í rekstrinum.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Daglegur rekstur, standsetning, eftirlit með vélbúnaði og tæknikerfum.
· Þátttaka í uppbyggingu og þróun tæknikerfa.
· Skráning og eftirfylgni með viðhaldsverkefnum í viðhaldskerfi fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Rafvirki/rafeindafræðingur eða sambærilegt
· Reynsla af rekstri eða framleiðslu er kostur
· Reynsla af vélgæslukerfum er kostur
· Frumkvæði og metnaður til að taka þátt í uppbyggingu
· Góð íslensku- og/eða enskukunnátta.
Fríðindi í starfi
· Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu eins stærsta landeldisverkefnis Evrópu.
· Fjölbreytt og krefjandi verkefni í ört vaxandi atvinnugrein.
· Öflugt teymi sérfræðinga og spennandi starfsumhverfi.
· Framtíðarstarf
· Samkeppnishæf laun
Íslenska
Enska










