
Orkuvirki
Orkuvirki er leiðandi í hönnun, framleiðslu og uppsetningu á búnaði fyrir orkuiðnað. Við byrjuðum sem hefðbundið verktakafyrirtæki en erum núna háþróað leiðandi tæknifyrirtæki sem kemur að öllu ferlinu – frá hugmynd og hönnun til framkvæmdar og reksturs með fagmennsku, lausnahugsun og sveigjanleika að vopni.
Hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga; verk- og tæknimenntaðir, iðnaðarmenn og sérhæfðir verkamenn. Við erum nú um fimmtíu og fer fjölgandi, enda verkefnin næg, fjölbreytt og krefjandi.
Meginstarfsemi okkar er í orkugeiranum og iðnaði og felst í hönnun, framleiðslu, uppsetningu og reksturs tæknibúnaðar af ýmsu tagi. Við vinnum með öllum helstu orkufyrirtækjum landsins, bæði framleiðendum og dreifingaraðilum, auk fjölda fyrirtækja í öllum geirum þar sem orka leikur lykilhlutverk: gagnaverum, fiskeldi og öðrum framsæknum framleiðslu- og tæknifyrirtækjum.
Fjölbreytni verkefna er okkar styrkur og eflir okkur til aukins verkvits og frekari dáða.
Við leggjum áherslu á öruggt og gott starfsumhverfi og góðan starfsanda. Hjá Orkuvirki gefst metnaðarfullu fólki með ólíkan tæknibakgrunn tækifæri til að fylgja stórum og viðamiklum verkefnum alla leið, og vaxa og þroskast á sínu sviði um leið.

Ert þú reynslumikill flokkstjóri sem leiðir fólk og tekur þátt í verkinu
Kanntu að halda utan um verkefnin, gefa skýr fyrirmæli og fá fólk til að vinna vel saman?
Orkuvirki leitar að reynslumiklum flokkstjóra í fullt starf. Við leitum að fagmanni sem hefur yfirsýn yfir daglega framkvæmd, leiðbeinir samstarfsfólki og tekur sjálf þátt í verkinu.
Þetta er starf fyrir þig sem sameinar verkþekkingu og leiðtogahæfni og leggur jafna áherslu á framvindu, gæði og öryggi.
Þú skipuleggur daglega vinnu vinnuflokks, úthlutar verkefnum og fylgir framkvæmd þeirra eftir. Þú tryggir að fólkið hafi skýrar upplýsingar og nauðsynlegt efni og búnað og heldur stjórnendum upplýstum um stöðu verka.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja og stýra daglegri vinnu samkvæmt verkáætlun
- Undirbúa daginn og taka þátt í verkefnum flokksins
- Leiðbeina starfsfólki og styðja við þjálfun þess
- Fylgja eftir teikningum, verklýsingum og kröfum um gæði
- Stuðla að öruggu vinnuumhverfi og bregðast við áhættu
- Vinna við framleiðslu, uppsetningu og þjónustu
- Vinna við háspennu, millispennu og lágspennu
- Bilanagreining og viðgerðir
- Tryggja fagleg vinnubrögð og vandaðan frágang
- Gæta öryggis og réttrar meðferðar efnis, verkfæra og búnaðar
- Deila þekkingu og stuðla að góðu samstarfi innan teymisins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í rafvirkjun, meistararéttindi eru kostur
- Að lágmarki 5 ára starfsreynsla sem rafvirki í háspennu
- Reynsla af flokkstjórn eða sambærilegu starfi
- Færni í að lesa teikningar, verklýsingar og tæknigögn
- Fagleg dómgreind, yfirvegun og skýr samskipti
- Gild ökuréttindi
- Hreint sakavottorð
- Almenn tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Frábær starfsandi og öflugt teymi
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Tækifæri til að vaxa í starfi
- Verkfæri og viðeigandi fatnaður
- Niðurgreiddur hádegisverður
- Íþróttastyrkur
Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur29. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Tunguháls 3, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðÖkuréttindiRafvirkjunSveinspróf
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Ert þú reynslumikill rafvirki sem vilt skila verki sem þú getur verið stolt(ur) af?
Orkuvirki

Starfsmaður í Þjónustudeild
Landstólpi ehf

Pávers leitar að rafvirkja
Pávers ehf

Production Specialist - Electric
DTE

Umsjónarmaður - Umsjón fasteigna
Félagsstofnun stúdenta

Textílmiðstöð Íslands auglýsir eftir starfsmanni í TextílLab
Textílmiðstöð Íslands

TÆKNIMAÐUR Í TÆKNIDEILD BVT
Bako Verslunartækni

Tæknimaður – rafvirki
Enercon

Starfsmaður í áhaldahús Reykhólahrepps
Reykhólahreppur

RAFVIRKI / RAFMAGNSSÉRFRÆÐINGUR
atNorth

Tæknimaður / Maintenance Technician
Alvotech hf

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning