Samherji fiskeldi ehf.
Samherji fiskeldi ehf.

Kranamaður - B kranaréttindi

Samherji fiskeldi leitar að öflugum og fjölhæfum kranamanni til starfa í Eldisgarði á Reykjanesi.

Starfið felst í stjórnun og umsjón með stórum farandkrana innan athafnasvæðis okkar á Reykjanesi. Auk kranavinnu mun starfsmaðurinn sinna fjölbreyttum verkefnum á svæðinu og taka virkan þátt í daglegum störfum og framkvæmdum.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Stjórnun og umsjón með stórum farandkrana.

· Akstur lyftara og flutningur á efni og búnaði.

· Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum tengdum framkvæmdum og daglegum rekstri svæðisins.

· Daglegt eftirlit og umhirða tækja og búnaðar.

Menntunar- og hæfniskröfur

· Gild B-1 kranaréttindi.

· Gild lyftararéttindi.

· Reynsla af stjórnun stórra farandkrana er skilyrði.

· Góð færni í að tjá sig á ensku er skilyrði og íslenskukunnátta mikill kostur.

· Sjálfstæð og öguð vinnubrögð ásamt ríkri öryggisvitund.

· Sveigjanleiki og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni.

· Almenn verkleg færni og önnur vinnuvélaréttindi eru kostur.

Fríðindi í starfi

· Fjölbreytt og krefjandi starf á öflugu framkvæmdasvæði.

· Góða vinnuaðstöðu og spennandi verkefni.

· Heitan hádegisverð í mötuneyti á svæðinu.

· Tækifæri til að taka þátt í umfangsmikilli uppbyggingu fiskeldis á Reykjanesi.

Auglýsing birt23. nóvember 2026
Umsóknarfrestur15. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar