Útslag ehf.
Útslag ehf.
Útslag ehf.

Rafviki / Rafvirkjanemi á Egilsstöðum

Útslag ehf. leitar að metnaðarfullum og samviskusömum rafvirkja eða rafvirkjanema til að ganga til liðs við okkur í fjölbreytt og krefjandi verkefni á Austurlandi. Um er að ræða spennandi tækifæri í vaxandi fyrirtæki þar sem unnið er að allt frá almennum raflögnum yfir í sérhæfðar iðnstýringar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almennar raflagnir í nýbyggingum, endurbótum og atvinnuhúsnæði.

  • Uppsetning og tenging á rafmagnstöflum og stjórnbúnaði.

  • Viðhald, bilanaleit og þjónusta fyrir fyrirtæki, veitur og einstaklinga.

  • Uppsetning og vinna við iðnstýringar (PLC) og snjall- og lýsingarstýringar (DALI/Plejd).

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rafvirkjun eða nám í rafvirkjun (námssamningur í boði fyrir réttan aðila).

  • Bílpróf (B-réttindi).

  • Samviskusemi, stundvísi og metnaður til að skila vönduðu verki.

  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og góð samskiptahæfni.

Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni á Austurlandi.

  • Laun samkvæmt kjarasamningi rafiðnaðarmanna (í samræmi við menntun og reynslu).

  • Góða handleiðslu fyrir nema og tækifæri til að vaxa í starfi.

Auglýsing birt23. nóvember 2026
Umsóknarfrestur1. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Miðás 22, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Rafvirkjun
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar