Víking Brugghús CCEP á Íslandi
Víking Brugghús CCEP á Íslandi
Víking Brugghús CCEP á Íslandi

Viðhaldsstjóri hjá Víking brugghús

Víking Brugghús á Akureyri leitar að sjálfstæðum og drífandi einstaklingi til að hafa umsjón með og leiða viðhald á vélum og tæknibúnaði framleiðslunnar. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni þar sem þú kemur að uppsetningu, viðhaldi og endurnýjun framleiðslubúnaðar sem gegnir lykilhlutverki í daglegri starfsemi brugghússins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á viðhaldi og daglegri framkvæmd viðhaldsáætlana
  • Skipulagning, samhæfing og innleiðing umbóta og á fyrirbyggjandi viðhaldi
  • Endurnýjun á framleiðslubúnaði
  • Samskipti við innlenda og erlenda birgja
  • Innkaup og birgðastýring varahluta
  • Eftirfylgni með verktökum og þjónustuaðilum
  • Viðhald fasteigna og lóðar fyrirtækisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði rafvirkjunar, vélvirkjunar, vélstjórnar eða önnur tæknimenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af skipulögðu viðhaldi og viðhaldskerfum
  • Reynsla af framleiðsluumhverfi er kostur
  • Öryggis og gæðamiðað hugarfar
  • Þjónustulund og góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og skipulagshæfni
  • Metnaður og lausnamiðuð hugsun
Auglýsing birt27. nóvember 2026
Umsóknarfrestur6. desember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Furuvellir 18, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar