

Rafvirki
Við leitum að öflugum og sjálfstæðum rafvirkja til starfa hjá Olíudreifingu ehf í Reykjavík.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf fyrir rafvirkja sem hefur áhuga á tæknilegum
áskorunum og er tilbúinn til að takast á við fjölbreytt verkefni um land allt.
Nánari upplýsingar Upplýsingar um starfið veitir Bergur Már Óskarsson, [email protected].
Að loknu ráðningaferli verður öllum umsóknum svarað. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
Um Olíudreifingu:
Olíudreifing er þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði orkumála. Hlutverk Olíudreifingar er að dreifa og halda utan um birgðir á fljótandi orkugjöfum. Félagið er nú þegar þátttakandi í orkuskiptum og er að undirbúa meðhöndlun rafeldsneytis.
Olíudreifing rekur einnig bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði.
Starfsmenn félagsins eru um 140 talsins á starfsstöðvum víðs vegar um landið.
Starfað er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum.
Nánari upplýsingar um Olíudreifingu ehf. má finna á www.odr.is.
● Fjölbreytt viðhald og viðgerðir á raf- og tæknibúnaði á eldsneytisstöðvum
● Bilanagreining og úrlausn tæknilegra verkefna
● Nýlagnir, breytingar og uppsetningar á rafkerfum
● Uppsetning og endurnýjun búnaðar á eldsneytisstöðvum
● Þátttaka í fjölbreyttum framkvæmdum
● Sveinspróf í rafvirkjun
● Góð þekking og reynsla af raflögnum og rafbúnaði
● Hæfni í bilanagreiningu og lausn tæknilegra verkefna
● Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð
● Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
● Færni til að vinna bæði sjálfstætt og sem hluti af teymi
● Almenn tölvukunnátta
● Ökuréttindi
Mötuneyti
Íþróttastyrkur
Gleraugnastyrkur
Íslenska
Enska










