Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Machine Designer

Ert þú rafmagnsverk- eða tæknifræðingur og hefur brennandi áhuga á sjálfvirkni, iðnstýringum (PLC) og róbótum?

Össur leitar að metnaðarfullum einstaklingi til starfa í framleiðsluþróunardeild fyrirtækisins. Hlutverk deildarinnar er nýsköpun og þróun á framleiðslutækni, þátttaka í innleiðingu nýrra vara í framleiðslu og umbætur/rekstur á framleiðsluferlum. Í boði eru fjölbreytt og spennandi verkefni ásamt tækifærum til að vaxa í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Forritun og rafmagnshönnun á tækjum og vélbúnaði til framleiðslu 

  • Þátttaka í innleiðingu nýrra vara í framleiðslu 

  • Þróun nýrrar framleiðslutækni með véla- og tækjahönnun 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun í rafmagns- eða vélaverkfræði eða tæknifræði 

  • 3 ára reynsla af sambærilegu starfi 

  • Hæfni í mannlegum samskiptum 

  • Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og opin/n/ð fyrir nýjungum 

  • Framúrskarandi enskukunnátta 

  • Reynsla í forritun iðntölva (PLC) 

  • Reynsla við gerð rafmagnsteikninga 

  • Reynsla af forritun í .Net/Java/C++ er kostur 

  • Reynsla af notkun CAD-forrita (t.d. SolidWorks) er kostur 

Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur  

  • Samgöngustyrkur  

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir  

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat 

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf 

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur  

  • Starfsþróun
  • Öflugt félagslíf

Auglýsing birt1. apríl 2026
Umsóknarfrestur28. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar