Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Ábyrgðaraðili stjórnkerfa virkjunum ON

Við leitum að metnaðarfullum sérfræðingi í hlutverk ábyrgðaraðila stjórnkerfa í virkjunum Orku náttúrunnar.
Starfið tilheyrir deild Raf- og Stjórnkerfa sem sinnir m.a. eignastýringu á öllum rafbúnaði orkuframleiðslukerfa fyrirtækisins, Há-, lágspennu- og varnarbúnaði ásamt stjórn- og netkerfum virkjanareksturs.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í hlutverki ábyrgðaraðila kemur þú með að gegna lykilhlutverki við forgangsröðun stjórnkerfistengdra verka.

Á meðal annarra verkefna eru uppfærsla á hugbúnaði í stjórnkerfum, bilana- og veikleikagreiningar, þróun og innleiðing nýrra lausna, stuðningshlutverk í fjárfestingar- og þróunarverkefnum ásamt þátttöku í fjölbreyttum verkefnum tengdum stafrænni vegferð ON.

Við leitum því að ábyrgum einstakling sem býr yfir reynslu af rekstri stjórnkerfa úr sambærilegu starfsumhverfi. Viðkomandi mun vinna í nánu samstarfi við ábyrgðarmenn búnaðar, rekstraraðila virkjana og aðra hagaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af hönnunar- og forritunarvinnu við stjórnkerfi (DCS/PLC/SCADA) er skilyrði
  • Lesskilningur á rafmagns- og stýriteikningum er skilyrði
  • Þekking á varnarbúnaði rafmagns og netkerfum er kostur
  • Reynsla af viðhaldsstjórnunarkerfum er kostur
  • Rík öryggisvitund er skilyrð
  • Samskipta- og samstarfsfærni, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
  • Menntun sem nýtist í starfi

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.

Auglýsing birt25. mars 2026
Umsóknarfrestur12. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hellisheiðarvirkjun
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KerfishönnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.PLC forritunPathCreated with Sketch.Vélbúnaðarforritun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar