

Sérfræðingur í raforkukerfum
Við leitum eftir rafmagnsverkfræðingi eða rafmagnstæknifræðingi, helst með reynslu af vinnu eða verkefnastjórnun við framleiðslu-, flutnings- og/eða dreifikerfi raforku.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði raforkukerfa í virkjunum, tengivirkjum, veitukerfum og iðnaði. Meðal verkefna eru forritun, eftirlit, prófanir og gangsetning kerfa á verkstað.
Verksviðið er fjölbreytt og nær allt frá frumathugunum og valkostagreiningum til útboðshönnunar, yfirferðar á hönnun verktaka, deilihönnunar og forritunar búnaðar í veitukerfum.
Vinnan er teymisvinna og krefst góðra samskipta við samstarfsfélaga og viðskiptavini. Starfið tilheyrir rafbúnaðarhópi Orkusviðs.
Við höfum áhuga á jákvæðum einstaklingum með góða samskipta- og skipulagshæfni sem sýna metnað, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Rafmagnsverkfræðingur eða rafmagnstæknifræðingur
- Reynsla af hönnun rafkerfa er æskileg
- Reynsla af stjórnun verkefna er kostur
- Þekking á helstu forritum sem notuð eru við hönnun rafkerfa
- Reynsla af vinnu við uppsetningu rafkerfa er æskileg
- Gott vald á íslensku og ensku
Íslenska
Enska




