Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Deildarstjóri þjónustudeildar á Vestursvæði

Vegagerðin leitar að framsæknum einstaklingi í fjölbreytt og krefjandi starf deildarstjóra þjónustudeildar á Vestursvæði. Deildarstjóri ber ábyrgð á stjórnun og rekstri deildarinnar og hefur yfirumsjón með öllum þjónustuverkefnum svæðisins sem nær frá Hvalfirði að sunnan og að Holtavörðuheiði, miðja Laxárdalsheiði og suður Innstrandaveg að Stikuhálsi.

Á þjónustudeild Vestursvæðis starfa um 45 starfsmenn á þjónustustöðvum í Búðardal, Hólmavík, Ólafsvík og Patreksfirði, auk þjónustustöðvar og vélaverkstæðis á Ísafirði, og þjónustustöðvar og vélaverkstæðis á svæðismiðstöð Vestursvæðis í Borgarnesi.

Starfsstöð deildarstjóra þjónustu á Vestursvæði er á Ísafirði en á starfsstöðinni starfa um 30 manns.

Helstu verkefni og ábyrgð

Deildarstjóri leiðir starfsemi þjónustudeildar og tryggir að þjónustuverkefnum sé sinnt í samræmi við verklag.

  • Undirbúningur og áætlanagerð fyrir þjónustu og rekstur samgöngukerfis svæðisins, almennur rekstur og vetrarþjónusta.
  • Yfirumsjón með rekstri og starfsemi þjónustustöðva og vélaverkstæðis.
  • Yfirumsjón með rekstri jarðganga.
  • Umsjón með viðhaldi vegsvæða.
  • Leyfisveitingar fyrir viðburði og framkvæmdir tengdar veghelgunarsvæði.
  • Kostnaðareftirlit og birgðahald.
  • Ábyrgð á starfsfólki og góðu starfsumhverfi.
  • Öryggis- og umhverfismál á þjónustustöðvum.
  • Samskipti við hagaðila á svæðinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. verkfræði, tæknifræði eða viðskiptafræði. Framhaldsnám er kostur.
  • Reynsla af stjórnun, rekstri og áætlanagerð er kostur.
  • Mjög góð hæfni til ákvarðanatöku, eftirfylgni og verkefnastýringar.
  • Framúrskarandi samskiptafærni og lausnamiðuð nálgun.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Öryggisvitund.
  • Mjög góð íslenskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
  • Mjög góð tölvukunnátta.
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Dagverðardalur 1, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar