Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Sérfræðingur vélbúnaðar- og lagnakerfa í virkjunum ON

Langar þig að sinna viðhaldi og þróun vélbúnaðar og lagnakerfa og tryggja þannig áreiðanlegan rekstur stærstu jarðvarmavirkjunar í Evrópu?

Um er að ræða ábyrgðarstarf í stærsta jarðvarmafyrirtæki á Íslandi og felur í sér sérfræðihlutverk, tengd vél- og lagnabúnaði veitukerfa í virkjunum ON.Helstu verkefni snúa að rekstri og viðhaldi á gufu-, kaldavatns-, niðurrennslis- og varaveitna tveggja jarðvarmavirkjana með samanlagt yfir 427 MW í uppsettu afli í raforku og 665 MW í varmaafli.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í hlutverki sérfræðings vélbúnaðar- og lagnakerfa berð þú ábyrgð á skipulagningu verkefna, tryggir öruggt flæði þeirra og forgangsraðar í samráði við ábyrgðaraðila og deildarstjóra.

Á meðal annarra verkefna er þátttaka í mótun ferla og umbóta í tengslum við flæði verka, aðkoma að þróun viðhaldsstjórnunarkerfis ON og útgáfa verkbeiðna.

Í framangreindu felst m.a. gerð áhættumats, verklýsinga og áætlanagerða, öflun aðfanga, forgangsröðun verka og upplýsingagjöf til hagsmunaaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og reynsla af eigna- og viðhaldsstýringu ásamt vinnu með vélbúnað
  • Reynsla af iðnaðarrekstri, s.s. úr stóriðju, virkjunum eða sambærilegu er kostur
  • Reynsla af verkefnastjórnun og áætlanagerð, þar á meðal viðhaldsáætlunum, fjárfestingaáætlunum og forgangsröðun verka
  • Góð tækni- og tölvufærni, skipulagshæfni og yfirsýn
  • Frumkvæði og lausnarmiðuð hugsun
  • Þekking og reynsla af öryggis- og umhverfismálum er kostur
  • Menntun á sviði vélbúnaðar í iðn-, verk-, vél- eða tæknifræði

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.

Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hellisheiðarvirkjun
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar