
Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyinga sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Símans eru skapandi, fagleg og árangursdrifin.

Verslunarstjóri
Við leitum að reynslumiklum og söludrifnum verslunarstjóra í verslun Símans í Smáralind. Verslunarstjóri þarf að búa yfir framúrskarandi samskiptahæfileikum og hafa brennandi áhuga á sölu og þjónustu. Mikilvægt er að viðkomandi geti sýnt frumkvæði og unnið sjálfstætt. Við leitum að einstaklingi sem er metnaðarfullur, drífandi og skapandi með reynslu af verslunarrekstri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg ábyrgð á verslun Símans í Smáralind
- Almenn afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini eftir þörfum
- Starfsmannahald, ráðningar og vaktaskipulag
- Þjálfun starfsfólks og úthlutun verkefna
- Ábyrgð og eftirfylgni með mánaðarlegum sölu- og þjónustumarkmiðum
- Ábyrgð á ásýnd og útliti verslunar Símans í Smáralind í samstarfi við markaðsdeild
- Uppgjörsvinna, birgðastjórnun, gerð verkferla og áætlana
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umtalsverð reynsla af verslunarrekstri æskileg
- Góð almenn tölvuþekking og þekking á SAP er kostur
- Góðir stjórnunar- og skipulagshæfileikar
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Áreiðanleiki, sveigjanleiki og stundvísi
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Auglýsing birt29. janúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiFrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagVaktaskipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Teymisstjóri óskast í nýjan íbúðakjarna
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Verslunarstjóri fyrir Curvy og Stout
Curvy verslun

Verkstjóri á starfsstöð Samskipa á Selfossi
Samskip

Verslunarstjóri
Strand49

Verslunarstjóri BIOEFFECT verslana
BIOEFFECT hf.

Teymisstjóri í Miðjuna, miðstöð stuðnings- og stoðþjónustu
Velferðarsvið Kópavogsbæjar

Hópstjóri þjónustuvers
Auðkenni ehf.

Verslunnarstjóri
Ísbúðin Valdís ehf.

Gróðurhúsatýpa sem elskar tómata.
Sólheimasetur ses

Kjörbúðin Bolungarvík - verslunarstjóri
Kjörbúðin

Verslunarstjóri í verslun
Bitinn