Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Sérfræðingur í opinberum innkaupum og samningsstjórnun

Skrifstofa fjármála á umhverfis- og skipulagssviði óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf sérfræðings í opinberum innkaupum og samningsstjórnun. Skrifstofan fer með leiðandi hlutverk í gerð og innleiðingu verkferla er varða fjármál og eftirfylgni þeirra. Styður við fjármál, innkaup og áhættustýring sviðsins svo unnt sé að skapa öruggt og traust fjárhagslegt starfsumhverfi. Veitir stjórnendum og starfsfólki upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð varðandi fjármál og innkaup svo sem áætlanagerð, fjárhagsbókhald, verkbókhald, innheimtu, uppgjör, innkaup, samningsstjórnun, áhættustýringu og sinna innra eftirliti. Um nýtt starf er að ræða, næsti yfirmaður er deildarstjóri innkaupa og samningsstjórnunar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróa verklag er snýr að innkaupum, þ.m.t samningsgerð og samningsstjórnun.
  • Halda utan um útboðsáætlun sviðsins. Rýna samninga og tryggja að farið sé eftir samningum við framkvæmd innkaupa.
  • Taka þátt í þróun og uppfærslu staðlaðra samningsskilmála.
  • Halda utan um skráningu samninga sviðsins og styðja við eftirlit.
  • Aðstoðar starfsfólk og stjórnendur við samningsstjórnun á sviði opinberra innkaupa.
  • Vera ráðgefandi varðandi val á innkaupaleið og leiðbeina stjórnendum og starfsfólki þar um.Önnur verkefni tengd fjármálum og daglegum rekstri skrifstofunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. lögfræði, viðskiptafræði, verkfræði.
  • Framhaldsmenntun æskileg.
  • Þekking og reynsla af samningsstjórnun á sviði verkframkvæmda, þjónustu- og vörukaupa.
  • Þekking og reynsla af greiningarvinnu í fjölbreyttum rekstri. 
  • Þekking á opinberum innkaupum kostur.
  • Framúrskarandi samskipta og samstarfshæfni, drifkraftur, frumkvæði og metnaður.
  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð, framsýni og lausnarmiðuð hugsun.
  • Góð færni í greiningu og framsetningu flókinna gagna.
  • Góð almenn tölvuþekking og kunnátta til að nýta upplýsingakerfi sem stjórntæki.
  • Gott vald á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti og geta til að miðla upplýsingum á skýran og greinargóðan hátt.
  • Tungumálaviðmið: C1 í íslensku og B2 í ensku skv. evrópska tungumálarammanum
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur12. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar