
Sumarstörf - Kópavogsbær
Kópavogsbær býður upp á fjölbreytt sumarstörf á hverju ári fyrir 18 ára og eldri. Í boði eru m.a. störf í Þjónustumiðstöð, garðyrkju, skógrækt, sundlaugum, íþróttavöllum, sumarnámskeiðum fyrir börn, skapandi sumarstörf og á bæjarskrifstofum svo eitthvað sé nefnt.

Viltu þjónusta í þjónustuveri?
Starfið felst í að sinna afleysingu starfsfólks í Þjónustuveri Kópavogsbæjar. Þjónustufulltrúi í þjónustuveri sinnir móttöku og almennri þjónustu við viðskiptavini, símsvörun og upplýsingamiðlun fyrir Bæjarskrifstofur Kópavogs, í samræmi við skilgreint hlutverk þjónustuvers. Þjónustufulltrúi tekur virkan þátt í vinnu við skráningu, uppfærslu og miðlun upplýsinga jafnt til innri sem ytri viðskiptavina.
Um 100% starf er að ræða. Vinnutími er frá kl. 8 til 16 mánudaga til fimmtudaga og frá kl. 8 til 14 á föstudögum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Upplýsingagjöf í gegnum samskiptavef
- Svara íbúum Kópavogs í síma varðandi erindi þeirra
- Taka á móti gestum í þjónustuveri
- Móttaka umsókna og teikninga
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf
- Góð tölvukunnátta og reynsla í notkun Word og Excel
- Reynsla af þjónustu æskileg
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði. Önnur tungumálakunnátta er mikill kostur.
- Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og skipulögð vinnubrögð
Auglýsing birt2. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi - Fullt starf hjá Heimilistækjum
Heimilistæki ehf

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautahöllin Akureyri

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Verslunarstjóri Huppu í Garðabæ
Ísbúð Huppu

Þjónusturáðgjafi Kia, Honda og Xpeng
Bílaumboðið Askja

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Lyfja Reyðarfirði - Forstöðumaður útibús
Lyfja

Lyfja Granda - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Þjónustusnillingur í afgreiðslu!
UMAMI