

Starfsmaður í kjötborð & eldhús
Melabúðin auglýsir eftir fjölhæfum starfsmanni í fullt starf.
Við leitum að ábyrgum, glaðlyndum og lausnamiðuðum einstaklingi í sælkeraverslun sem leggur metnað sinn í góða þjónustu og er með eitt breiðasta vöruúrval landsins í matvöru.
Vinnutími er frá kl.08-17:00 alla virka daga. Möguleiki á auka vinnu um helgar og kvöldin.
· Afgreiðsla í kjöt- og fiskborði, ásamt tilfallandi eldhússtörfum
· Móttaka og frágangur á vörum
· Almenn verslunarstörf meðal annars:
· Afgreiðsla á kassa
· Áfyllingar og framstilling í verslun
· Önnur verkefni sem stjórnandi felur starfsmanni
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Metnaður í sölumennsku og upplifun viðskiptavina
· Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
· Reynsla af þjónustustörfum kostur
· Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
· Reynsla af matreiðslu er kostur
· 18 ára aldurstakmark
Íslenska
Enska










