Þjónustufulltrúi - Geðheilsumiðstöð barna HH
Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi til að koma til liðs við okkur.
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ráða þjónustufulltrúa til starfa hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 50-100% ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar eða eftir nánara samkomulagi.
Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.
Þjónustufulltrúi starfar í stoðteymi GMB sem vinnur þvert á önnur teymi og þjónustar þau. Verkefni þjónustufulltrúa eru fjölbreytt, til dæmis:
· Símsvörun og móttaka skjólstæðinga
· Vinnsla, skönnun og útsending gagna
· Móttaka gagna og skráning
· Svörun erinda í tölvupósti
· Ljósritun, frágangur og útsending námsgagna
· Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
· Önnur tilfallandi verkefni
- Nám sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegu starfi og/eða skrifstofustarfi æskileg
- Reynsla af Sögukerfi er æskileg
- Reynsla af Heilsuveru er æskileg
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta, bæði rituð og töluð
- Góð almenn enskukunnátta er æskileg
- Heilsustyrkur
- samgöngustyrkur