Þjónusturáðgjafi í Viðskiptatengslum
Vilt þú ganga til liðs við ört vaxandi alþjóðlegt fjártæknifyrirtæki? Teya leitar að einstaklingum með ríka þjónustulund sem geta tekist á við krefjandi verkefni.
Sem hluti af viðskiptatengslum Teya tekur þú virkan þátt í að þjónusta mikilvægasta hluta fyrirtækisins, viðskiptavini Teya. Viðskiptavinir okkar eru hjarta fyrirtækisins og viljum við bjóða upp á öll þau tæki og tól sem viðskiptavinir okkar þurfa til þess að vaxa og dafna á íslenskum fyrirtækjamarkaði. Okkar markmið er að mynda og viðhalda langtíma viðskiptasambandi við viðskiptavini ásamt því að sjá fyrir og mæta þeirra þörfum.
Starfið:
Þú munt starfa í framlínu Teya og viðhalda viðskiptatengslum við fjölbreyttan hóp viðskiptavina fyrirtækisins. Meginverkefni þín verða að svara beiðnum sem berast Teya í gegnum síma, tölvupóst og netspjall. Þú verður rödd viðskiptavina okkar og munt hafa áhrif á þróun viðskiptalausna innan Teya.
Viðskiptatengsl Teya:
Teymið samanstendur af kraftmiklum hópi með sterka liðsheild. Okkar áhersla eru viðskiptavinir Teya og hver dagur fer í það að þjónusta þá eftir okkar bestu getu. Við erum árangursmiðuð og við njótum þess að vinna í hópi skemmtilegs fólks. Þú verður hluti af framlínu viðskiptatengsla Teya og tekur virkan þátt í uppbyggingu fyrirtækisins hér innanlands og utan.
Við leitum að starfsfólki í fullt starf. Teymið starfar á hefðbundnum skrifstofutíma, mánudag - föstudag.
Við viljum heyra í þér ef þú;
-
Hefur ríka þjónustulund
-
Ert fær í mannlegum samskiptum
-
Vinnur vel í teymi
-
Árangursmiðuð/aður og kappgjörn/gjarn
-
Þolir að vinna undir álagi
-
Tilbúin/nn að læra og takast á við nýjar áskoranir
-
Talar íslensku og ensku
Vinsamlegast sendið inn ferilskrá á ensku.