
Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyingar sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Símans eru skapandi, fagleg og árangursdrifin.

Síminn leitar að fyrirtækjaráðgjafa
Við leitum að kraftmiklum og markmiðadrifnum einstaklingi til að ganga til liðs við öflugt teymi fyrirtækjaráðgjafa sem tilheyrir Fyrirtækjasölu Símans. Fyrirtækjaráðgjöf Símans samanstendur af teymi sem þjónustar og selur fyrirtækjalausnir til meðalstórra og minni fyrirtækja. Starfið felur í sér sölu, þjónustu og ráðgjöf til núverandi sem og nýrra viðskiptavina Símans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala á fyrirtækjavörum Símans
- Ráðgjöf til núverandi og nýrra viðskiptavina
- Samninga- og tilboðsgerð
- Önnur verkefni tengd störfum fyrirtækjaráðgjafar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Söluáhugi og metnaður
- Þekking á íslensku atvinnulífi
- Lausnamiðuð hugsun og drifkraftur
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði í riti og tali
- Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Fagmennska í framkomu og heiðarleiki
- Skipulagshæfni og vandvirkni
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Auglýsing birt12. nóvember 2024
Umsóknarfrestur19. nóvember 2024
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagVandvirkniÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Gestgjafi hjá Öskju
Bílaumboðið Askja

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

VR á Egilsstöðum
VR

Sérfræðingur í rafbúnaði í útibúi Johan Rönning, Akureyri
Johan Rönning

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust

Söluráðgjafi í grófvöru til fagaðila
Byko

Sölu- og ferðaráðgjafi
Iceland ProTravel

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Framkvæmdastjóri mannauðs - Heilbrigðisstofnun Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands

Sölufulltrúi
BEWI

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Fulltrúi í þjónustu
Þjóðskrá