Rými
Rými
Rými

Starfsmaður í útkeyrslu og á lager

Vegna aukinna verkefna leitum við að hörkuduglegum einstakling til að ganga til liðs við lagerteymið okkar. Viðkomandi mun, ásamt hefðbundunum lagerstörfum, sjá um útkeyrslu á vörum til viðskiptavina okkar. Mikill kostur að viðkomandi hafi lyftarapróf. Við leitum eftir öflugum og þjónustuliprum einstaklingi sem er til í að takast á við spennandi og skemmtileg verkefni. Viðkomandi verður að vera ábyrgur, stundvís, hafa framúrskarandi samskiptahæfileika ásamt því að búa yfir hæfni til að starfa sjálfstætt. Við hvetjum fólk af öllum aldri og af öllum kynjum til að sækja um. Góð laun í boði fyrir réttan aðila.

Rými ehf er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfandi frá árinu 1936. Hjá fyrirtækinu starfar samhentur hópur starfsmanna með áratuga reynslu af ráðgjöf, hönnun, þjónustu og uppsetningum á sviðum verslunarinnréttinga, lagerbúnaðar, skjalageymslutækni og búnaði fyrir iðnað, verkstæði, sveitarfélög og opinberar stofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka vörusendinga
  • Losun vörugáma
  • Tínsla og pökkun
  • Útkeyrsla til innri og ytri viðskiptavina
  • Önnur almenn vöruhúsastörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslenskukunnátta
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi, ábyrgð og drifkraftur
  • Lyftararéttindi mjög góður kostur
Fríðindi í starfi
  • Vinnufatnaður
  • Farsímaáskrift
Auglýsing birt15. nóvember 2024
Umsóknarfrestur1. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Gylfaflöt 2-4 2R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.LagerstörfPathCreated with Sketch.Meirapróf CPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Útkeyrsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar