Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Garðabæ

Heilsugæslan Garðabæ auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í tímabundið í 70-100% starf til eins árs þar sem megin starfssvið er hjúkrunarmóttaka ásamt heilsueflandi móttöku. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. febrúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Á Heilsugæslunni Garðabæ starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjúkrunarfræðingar sinna krefjandi og áhugaverðum verkefnum, margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi.

Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan Garðabæ leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er hjúkrunarmóttaka ásamt heilsueflandi móttöku.

Opin og bókuð móttaka 

Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.  


Heilsueflandi móttaka 

Hjúkrunarfræðingur metur heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning, fræðslu og eftirfylgni ásamt leiðsögn um heilbrigðikerfið og þjónustuúrræði

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð tölvukunnátta
Auglýsing birt21. nóvember 2024
Umsóknarfrestur9. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar