Rio Tinto á Íslandi
Rio Tinto á Íslandi
Rio Tinto á Íslandi

Sérfræðingur í umbótaverkefnum

Ertu lausnamiðaður, drífandi og skipulagður einstaklingur með reynslu af umbótastarfi?

Rio Tinto á Íslandi (ISAL) leitar að öflugum sérfræðingi í umbótaverkefnum til að taka þátt í og leiða vinnu við fjölbreytt verkefni þvert á allar deildir fyrirtækisins. Um krefjandi og fjölbreytt starf er að ræða þar sem viðkomandi kemur til með að sjá verkefni frá hugmynd til innleiðingar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýring og eftirfylgni umbótaverkefna í samstarfi við stjórnendur og teymi.
  • Greining á núverandi ferlum og gerð tillagna að umbótum.
  • Veita ráðgjöf og þjálfun um bestu aðferðir við innleiðingu umbóta.
  • Þjálfun og kennsla fyrir starfsfólk ásamt þróun kennsluefnis.
  • Þátttaka í innri úttektum og aðstoð við umbætur sem fylgja þeim.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk- eða tæknifræði. 
  • Reynsla af vinnu við umbótaverkefni, verkefnastjórnun eða skyld störf kostur. 
  • Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð með getu til að takast á við flókin verkefni.
  • Framúrskarandi skipulagshæfni ásamt færni í mannlegum samskiptum og getu til að starfa í teymi. 
  • Góð íslensku - og enskukunnátta ásamt hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og hvetjandi hátt. 
  • Þekking á straumlínustjórnun/LEAN og áhugi á stafrænum lausnum er kostur. 
  • Þekking á gæðakerfum (s.s. ISO 9001, ISO 45001) er kostur. 
  • Góð tölvukunnátta. 
Fríðindi í starfi
  • Frítt fæði í mötuneyti
  • Heilsustyrkur
  • Fæðingarorlofsstyrkur allt að 18 vikur á óskertum launum
  • Velferðartorg
  • Þátttaka í hlutabréfakaupum
  • Öflugt þjálfunar - og fræðslustarf
Auglýsing birt23. janúar 2025
Umsóknarfrestur4. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Straumsvík, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar