KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi

Reikningsskil og endurskoðun - Sauðárkrókur

KPMG er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu á sviði endurskoðunar, reikningsskila, skatta, lögfræði og viðskiptaráðgjafar. Á Íslandi starfa um 250 sérfræðingar á 12 starfsstöðvum um land allt. Fjölbreytt þekking og reynsla okkar gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini í öllum stærðum og gerðum, bæði í einkageiranum og hjá hinu opinbera.


Hefur þú áhuga á reikningsskilum og endurskoðun?


Við leitum nú að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að bætast í okkar frábæra hóp á skrifstofu okkar á Sauðárkróki. Umsækjendur þurfa að vera í stakk búnir að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni tengd endurskoðun, reikningsskilum og gerð ársreikninga undir handleiðslu reyndra sérfræðinga.


Á vefsíðu okkar HÉR getur þú betur kynnt þér starf endurskoðenda og heyrt hvað starfsfólkinu okkar finnst um starfið og vinnustaðinn.
Ef að þú hefur grunn í viðskiptafræði og hefur áhuga á að vinna á sviði reikningsskila og endurskoðunar í skemmtilegu og frammistöðudrifnu starfsumhverfi þá viljum við endilega heyra frá þér.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þjónusta við fyrirtæki og opinbera aðila á sviði endurskoðunar.
  • Reikningsskil og gerð ársreikninga.
  • Skattskil og tengd mál.
  • Aðrar tilfallandi greiningar og verkefni.


Hæfniskröfur:

  • Grunnnám í viðskiptafræði eða öðru námi sem nýtist nauðsynlegt og kostur ef viðkomandi hefur lokið M.Acc gráðu.
  • Reynsla af bókhaldi, reikningsskilum eða öðru sem nýtist í starfi kostur.
  • Góð tölvufærni, greiningarhæfni og góð þekking á Excel.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Frumkvæði, nákvæmni og öguð vinnubrögð.
  • Hæfni til að vinna í teymi sem og sjálfstætt auk ríkrar þjónustulundar.


Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.


Að vinna hjá KPMG


Við hjá KPMG leggjum mikla áherslu á fjölbreytta og lifandi fyrirtækjamenningu þar sem starfsfólk nýtur sín faglega og félagslega.
Sem leiðandi þekkingarfyrirtæki leggjum við sérstaka áherslu á öfluga starfsþróun og fræðslu starfsfólks, stuðningsríkt og hvetjandi starfsumhverfi og öfluga samvinnu til þess að hámarka virði fyrir viðskiptavini og samfélagið.
Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.


Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:

  • Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum hjá KPMG á Íslandi og erlendis.
  • Möguleikar á að þróast í starfi.
  • Heilsueflandi vinnustaður og aðgangur að líkamsræktarstyrk og samgöngustyrk.
  • Golfklúbbur með aðgengi að völlum víðs vegar um landið.
  • 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöfum sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
  • Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra ásamt sérstökum fæðingarorlofsstyrk.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.


Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2026.

Æskilegt er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar).
Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum á [email protected] og Kristján Jónasson á [email protected]

Auglýsing birt28. janúar 2026
Umsóknarfrestur10. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Faxatorg 143322, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar