Deloitte
Deloitte
Deloitte

Endurskoðandi framtíðarinnar

Við leitum að öflugum einstakling sem er að stefna á, hefur nýlokið eða er jafnvel að vinna að M.Acc gráðu og langar að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í alþjóðlegu starfsumhverfi. Við leitum að einstakling sem hugsar í lausnum, getur unnið sjálfstætt, er drífandi og vill hafa áhrif. Sem endurskoðandi framtíðarinnar munt þú starfa í samheldnu teymi undir handleiðslu löggiltra endurskoðenda og öðlast þannig dýrmæta reynslu á sviði endurskoðunar og reikningsskila.

Um teymið

Teymið samanstendur af fjölbreyttum hópi starfsmanna; framtíðar og núverandi reynsluboltum á ólíkum aldri og með alls konar áhugamál. Teymið vinnur náið saman og styður hvort annað til að þroskast og þróast í starfi. Svo höfum við auðvitað gaman af því að fagna saman stórum sem smáum áföngum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Endurskoðun og reikningsskil 
  • Gerð ársreikningar 
  • Gerð uppgjöra og skattframtala 
  • Annað tilfallandi 
Menntunar- og hæfniskröfur
  •  Áhugi á endurskoðun og reikningsskilum 
  • Góð íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti 
  • Greiningarhæfni og góð þekkingu á Excel 
  • Reynsla af bókhaldsvinnu eða öðru sem nýtist í starfi er kostur 
  • Ert að ljúka eða hefur lokið B.Sc. menntun sem tengist viðskiptafræði, hagfræði eða fjármálum með góðum árangri 
  • Stefnir á, ert að vinna að eða hefur jafnvel lokið M.Acc gráðu 
Fríðindi í starfi

Starfsþróun þín  

Við trúum því að það sé ávallt rými til að læra en þú munt öðlast dýrmæta reynslu á sviði endurskoðunar og reikningsskila. Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum atvinnugeirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi styðjum við þinn vöxt með símenntunartækifærum.  

Að auki bjóðum við upp á:  

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat
  • Regluleg frammistöðu samtöl 
  • Samstarfsfélaga „buddy“ sem kemur þér inn í starfið
  • Styrk til verðandi foreldra 
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf 
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum 
  • Aðgang að alþjóðlegu efni Deloitte 
Auglýsing birt23. janúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar