

Verkefnastjóri í stafrænni þróun
KPMG er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu. Við bjóðum sérhæfða ráðgjöf og lausnir á sviði endurskoðunar, reikningsskila, skattskila, lögfræði og viðskiptaráðgjafar. Á Íslandi starfa um 250 sérfræðingar hjá KPMG á 12 starfsstöðvum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.
Verkefnastjóri í stafrænni þróun
KPMG leitar að drífandi og metnaðarfullum verkefnastjóra til að leiða innleiðingu og þróun lykilverkefna í nánu samstarfi við stjórnendur og út frá stefnu félagsins. Starfið heyrir undir fjármála- og rekstrarstjóra KPMG.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Verkefnastjórn og innleiðing á lykiltæknilausnum í samræmi við stefnu KPMG, m.a. lausnum byggðum á gervigreind, sjálfvirknivæðingu og öðrum nýjum lausnum.
- Öflugt samstarf með upplýsingatæknideild og helstu stjórnendum við þarfagreiningu, forgangsröðun og útfærslu tækniverkefna.
- Umsjón með verkáætlunum, framvindu og upplýsingagjöf til stjórnenda.
- Tryggja að tæknilausnir séu innleiddar og notaðar í samræmi við öryggis- og verklagsreglur KPMG.
- Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og teymi er varðar nýjar tæknilausnir, innleiðingu, breytingastjórnun og að tryggja góða notendaupplifun.
- Almennur stuðningur og þátttaka í öðrum stafrænum umbótaverkefnum eftir þörfum.
Hæfniskröfur:
- Sterkur tæknilegur skilningur og reynsla af innleiðingu stafrænna lausna; kostur ef viðkomandi þekkir Microsoft-umhverfið vel (t.d. M365, Power Platform, Azure, Copilot).
- Reynsla af verkefnastjórnun og hæfni til að leiða fjölbreytt verkefni frá hugmynd til loka.
- Skýr og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði.
- Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að vinna þvert á teymi og fagsvið.
- Jákvæðni, lausnamiðuð nálgun og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. hugbúnaðarverkfræði, verkefnastjórnun eða sambærilegt.
- Gott vald á íslensku og ensku, munnlega og skriflega, og geta til að starfa í alþjóðlegu umhverfi.
Um er að ræða spennandi starf í öflugu og alþjóðlegu fyrirtæki. Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.
Að vinna hjá KPMG
Við hjá KPMG leggjum mikla áherslu á fjölbreytta og lifandi fyrirtækjamenningu þar sem starfsfólk nýtur sín faglega og félagslega.Sem leiðandi þekkingarfyrirtæki leggjum við sérstaka áherslu á öfluga starfsþróun og fræðslu starfsfólks, stuðningsríkt og hvetjandi starfsumhverfi og öfluga samvinnu til þess að hámarka virði fyrir viðskiptavini og samfélagið.Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:
- Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
- Frábær tækifæri til að læra af og starfa með leiðandi sérfræðingum hjá KPMG hérlendis og erlendis.
- Heilsueflandi vinnustaður og aðgangur að líkamsræktarstyrk og samgöngustyrk.
- KPMGfit: Æfingar undir handleiðslu þjálfara tvisvar í viku í hádeginu í Reykjavík.
- Golfklúbbur með aðgengi að völlum víðs vegar um landið.
- Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
- 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöfum sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
- Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra ásamt sérstökum fæðingarorlofsstyrk.
- Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
- Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
- Og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2026.
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar).
Nánari upplýsingar veita Sigrún Kristjánsdóttir fjármála- og rekstrarstjóri ([email protected]) eða Erik Christianson mannauðsstjóri á [email protected]
Íslenska
Enska










