Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur Heilsugæslan Miðbæ

Heilsugæslan Miðbæ leitar að hjúkrunarfræðingi í ótímabundið starf og er starfshlutfall 80-100% eða eftir nánara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Við erum að leita að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni, sem hægt er að aðlaga að áhugasviði hvers og eins. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins er spennandi og fjölskylduvænn vinnustaður þar sem áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða aðlögun.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið er heilsuvernd eldra fólks og opin móttaka.

Hjúkrunarfræðingar í heilsuvernd eldra fólks greina m.a.áhættuþætti og veita fræðslu um aldurstengda þætti sem snerta heilsu og líðan. 

Við erum með móttöku sem sinnir fólki á öllum aldri, sinnum bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf. Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem eru ekki bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð ásamt heilsueflandi móttöku.

Heilsugæslan Miðbæ leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi

Heilsustyrkur

Auglýsing birt10. október 2024
Umsóknarfrestur28. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Vesturgata 7, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar