Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyinga sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Simans eru einfaldleiki og framsækni.
Deildarstjóri Viðskiptastýringar Símans
Ert þú drífandi leiðtogi með ástríðu fyrir sölu, þjónustu og tækninýjungum?
Síminn leitar að metnaðarfullum og árangursdrifnum leiðtoga með reynslu í sölustýringu til að leiða Viðskiptastýringu Símans. Deildarstjóri Viðskiptastýringar mun bera ábyrgð á þjónustu, sölu og ráðgjöf við lítil og meðalstór fyrirtæki í viðskiptum við Símann.
Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem vill hafa áhrif, leiða umbætur og taka þátt í að efla samband Símans við núverandi og nýja viðskiptavini. Deildarstjóri Viðskiptastýringar heyrir beint undir forstöðumann fyrirtækjasölu og þjónustu. Sem deildastjóri Viðskiptastýringar færðu tækifæri til að vaxa í krefjandi og spennandi umhverfi, þar sem hugmyndir þínar og framlag skipta máli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar
- Að setja skýra stefnu og markmið og fylgja þeim eftir af krafti
- Að auka ánægju viðskiptavina Símans með framúrskarandi þjónustu og sérsniðnum lausnum
- Sölu- og þjónustustýring verkefna sem stuðla að sterkum viðskiptatengslum
- Að hvetja til og leiða umbætur sem tryggja jákvæða upplifun viðskiptavina
- Þátttaka í fjölbreyttum og spennandi verkefnum sem stuðla að þróun fyrirtækjasölu Símans
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sölustýringu eða annarri stjórnun er æskileg
- Góð þekking á íslensku atvinnulífi
- Drifkraftur og ástríða til að ná árangri í starfi
- Framúrskarandi samskiptahæfni og færni til að hvetja aðra til árangurs
- Áhugi á tækni og hæfni til að tileinka sér tækninýjungar
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Auglýsing birt9. janúar 2025
Umsóknarfrestur19. janúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
FramúrskarandiNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðFrumkvæðiLeiðtogahæfniMannleg samskiptiMetnaður
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)
Vöruhússtjóri - Ásbrú Reykjanesbæ
Penninn
Rekstrarstjóri – Nettó
Nettó
Verslunarstjóri Nettó Miðvangi - Hafnarfirði
Nettó
Deildarstjóri Business Central þróun
Advania
A4 Heildsala - Söluráðgjafi
A4
Viðskiptastjóri / Business Development Manager
Teya Iceland
Forstöðumaður verkefna-, gæða- og þjónustustjórnunar
Seðlabanki Íslands
Markaðs- og sölustjóri/CMO
Alfreð
Viðskiptastjóri fyrir fyrirtækjalausnir
Flísabúðin hf.
Viðskiptastjóri
Medor
Deildarstjóri fagstarfs
Fossvogsskóli
Sölustjóri Netters
Netters ehf.