Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyinga sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Simans eru einfaldleiki og framsækni.
Sölufulltrúi hjá Símanum
Við leitum að öflugum einstaklingi til að ganga til liðs við Söluráðgjöf Símans. Um er að ræða spennandi starf sem felur í sér sölu og ráðgjöf til viðskiptavina Símans.
Við leitum að sölufulltrúa í fullt starf með brennandi áhuga á sölu og metnað til að veita framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og þjónusta til einstaklinga í gegnum síma, netspjall og tölvupóst
- Önnur tilfallandi söluverkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á sölu
- Einstök samskiptahæfni og framúrskarandi þjónustulund
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og lausnamiðuð hugsun
- Jákvætt viðhorf og geta til að stuðla að góðum liðsanda
- Stundvísi og áreiðanleiki
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Auglýsing birt7. janúar 2025
Umsóknarfrestur20. janúar 2025
Tungumálahæfni
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HeiðarleikiMannleg samskiptiSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Skrifstofustarf
Garðaþjónusta Sigurjóns ehf
A4 Heildsala - Söluráðgjafi
A4
Viðskiptastjóri / Business Development Manager
Teya Iceland
Úthringistarf hjá Tryggingamiðlun Ísland
Tryggingamiðlun Íslands
Premium of Iceland óskar eftir bókara
Premium of Iceland ehf.
Sölumaður dagvinna - framtíðarstarf
ATC
Bókunarfulltrúi - Söludeild Keahótela
Söluskrifstofa Keahótela
Áhafnavakt/Daily Crew Operations
Icelandair
Ert þú frábær sölumaður?
Tryggja
Þjónustufulltrúi
Ekran
Símsvörun - þjónustuver
Teitur
Sales Advisors For our new Asia Department in ICELAND
Arcarius ehf.