Sjúkraliði á dagdeild skurðlækninga í Fossvogi
Sjúkraliði óskast til starfa á dagdeild skurðlækninga A5 í Fossvogi. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og boðið er upp á aðlögun með reyndu og frábæru starfsfólki. Starfshlutfall og upphaf starfs er samkomulag.
Dagdeild skurðlækninga heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni starfa um 30 starfsmenn, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Í boði er fjölbreytt, tæknilegt og líflegt starf í sérhæfðu starfsumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi og þverfaglegt samstarf. Deildin tekur á móti öllum sjúklingum, bæði fullorðnum og börnum sem fara í aðgerðir á Landspítala í Fossvogi, s.s. HNE, lýta-, æða-, heila-, tauga- og bæklunarskurðaðgerðir.
Um er að ræða dagaðgerðir og undirbúning sjúklinga fyrir stærri aðgerðir. Sjúklingar sem fara í dagaðgerðir eru útskrifaðir samdægurs en sjúklingar sem fara í stærri aðgerðir eru lagðir inn á legudeild. Einnig sinnir deildin sjúklingum fyrir og eftir inngrip á vegum röntgen- og lungnalækna og tekur á móti bráðasjúklingum, s.s. frá bráðamóttöku, öðrum sjúkrahúsum og að heiman. Opnunartími deildar er frá 07:00 til 22:00 virka daga. Vinnutímaskipulag er vaktavinna og unnið er á tvískiptum vöktum.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.