Sótthreinsitæknir/ sérhæfður starfsmaður
Við viljum fjölga í okkar öfluga teymi og auglýsum eftir einstaklingi í fullt starf á dauðhreinsunardeild Landspítala við Tunguháls. Nýtt starfsfólk fær einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólks. Unnið er á dag- og kvöldvöktum og er starfið laust 1. febrúar 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Á deildinni starfa um 17 aðilar í þverfaglegu teymi sem samanstendur af sérhæfðu starfsfólki, sótthreinsitæknum og hjúkrunarfræðingum. Meginverkefni deildarinnar snúa að því að raða, pakka og dauðhreinsa verkfæri sem notuð eru á skurðstofum spítalans auk þess að sjá um að pakka og dauðhreinsa verkfæri frá öðrum starfsstöðvum innan og utan spítalans. Starfsemi deildarinnar er mikilvægur þáttur í sýkingarvörnum og mikilvægur hlekkur í að tryggja öryggi sjúklinga Landspítala.
- Pökkun, röðun og dauðhreinsun verkfæra fyrir skurðaðgerðir
- Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli
- Menntun sem nýtist í starfi, sótthreinsitæknanám er æskilegt
- Reynsla innan heilbrigðiskerfisins er æskileg
- Jákvæðni og góð samskiptahæfni
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð