Sjúkraliðar óskast á dagdeild skurðlækninga Hringbraut
Við sækjumst eftir sjúkraliða sem hefur áhuga á spennandi og fjölbreyttri hjúkrun. Starfshlutfall er 60-80% og er ráðið í starfið sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Á dagdeild skurðlækninga er frábær starfsandi og metnaður til að ná árangri. Á deildinni er tekið á móti sjúklingum sem fara í dagaðgerðir ásamt undirbúningi sjúklinga fyrir stærri aðgerðir, s.s. aðgerða á kviðarholi, þvagfærum, hjarta- og brjóstholi og augum. Vaxandi starfsemi er móttaka bráðasjúklinga, frá bráðamóttöku í Fossvogi, öðrum sjúkrahúsum, göngudeildum og að heiman. Einnig sjúklingum sem þurfa á styttri meðferð að halda og geta farið heim samdægurs, t.d. eftir lyfjagjöf, verkjameðferð, ástungur og aftöppun á vökva í kviðarholi.
Opnunartími deildar er frá 07:00 til 20:00 virka daga. Vinnutímaskipulag er dagvinna og unnið er á tvískiptum vöktum. Á deildinni vinnur samheldinn og góður starfshópur. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.