

Sálfræðingur - Réttar- og öryggisgeðdeild
Sálfræðiþjónusta Landspítala vill ráða til starfa metnaðarfullan og sjálfstæðan sálfræðing með góða samskiptafærni og sem hefur áhuga á að vinna með fólki sem sækir þjónustu á réttar- og öryggisgeðdeild.
Um er að ræða faglega krefjandi starf á spennandi vettvangi fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á réttarsálfræði, nýsköpun og framþróun í starfi. Landspítali er þverfaglegur vinnustaður og býður upp á líflegt starfsumhverfi. Starfið er innan réttar- og öryggisgeðdeildar og felur í sér sérhæfða greiningar- og meðferðarvinnu með fólki sem er að takast á við alvarlegan geðvanda.
Hjá Sálfræðiþjónustunni starfa 80 sálfræðingar í ólíkum þverfaglegum teymum á ýmsum deildum Landspítala. Sálfræðiþjónustan er í stöðugri framþróun og unnið að fjölbreyttum umbótaverkefnum. Margvísleg tækifæri eru til að dýpka þekkingu í greiningu og meðferð. Lögð er áhersla á að sálfræðingar á Landspítala fái öfluga handleiðslu og símenntun í faginu.


















































