

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lyndisraskana - dagvinna
Við óskum eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan hjúkrunarfræðing til starfa með okkur á göngudeild lyndisraskana í geðþjónustu Landspítala.
Innan göngudeildar lyndisraskana starfa eftirfarandi meðferðarteymi:
- Áfallateymi
- Átröskunarteymi
- DAM-teymi
- Geðhvarfateymi
- Þunglyndis- og kvíðateymi
- Öldrunargeðteymi
Starfsvettvangur er innan eins eða fleiri ofangreindra teyma og felst starfið meðal annars í mati á geðrænum og líkamlegum einkennum, teymisvinnu og þjónustu við aðstandendur. Á deildinni er lögð áhersla á góðan starfsanda, þverfaglegt samstarf og stöðugar umbætur. Í boði eru fjölbreytt tækifæri til vaxtar með markvissri þjálfun og starfsþróun og boðið er upp á faglega leiðsögn. Hjúkrunarfræðingur í meðferðareiningu lyndisraskana er virkur þátttakandi í mótun framtíðarsýnar og eflingu hjúkrunar innan geðþjónustu Landspítala.
Starfshlutfall er 80-100% og unnið er í dagvinnu. Vinnuvika í fullu starfi er 36 klukkustundir.
Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2025. Starfið er laust nú þegar eða eftir nánar samkomulagi.































































