

Hefur þú áhuga á skurðhjúkrun?
Við leitum eftir skurðhjúkrunarfræðingi til starfa á skurðstofur í Fossvogi og einnig hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á að fara í skurðhjúkrunarnám. Í boði eru áhugaverð störf með góðu samstarfsfólki þar sem unnið er á þrískiptum vöktum auk bakvakta samkvæmt vaktskipulagi deildar eftir að þjálfun lýkur. Starfshlutfall er samkomulag og er starfið laust frá 1. október 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Á deildinni eru 8 skurðstofur sem þjóna 5 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 6000 aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæft starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi.
Í boði er einstaklingsaðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.






























































