

Sérnámsstöður í öldrunarlækningum
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í öldrunarlækningum til tveggja ára. Um er að ræða viðbótarsérnám við heimilislækningar eða undirsérgrein lyflækninga og er það forkrafa að vera með sérfræðileyfi í annarri þeirra sérgreina.
Sérnámið er byggt á marklýsingu Royal Colleges of Physicians Training Board í Bretlandi og vottað af mats- og hæfisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnám fer fram á Landspítala en það er mögulegt að taka hluta á Sjúkrahúsinu á Akureyri og á hjúkrunarheimilinu Eir.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er 23. febrúar en fimmtudaginn 26. febrúar er móttökudagur sérnáms, upphaf starfs getur einnig verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra sérgreinarinnar.
Sjá .
Sjá almennt um sérnám í læknisfræði, og .
- Vinna og nám á legudeildum og göngudeildum ásamt vaktþjónustu
- Þátttaka í ráðgjafaþjónustu undir handleiðslu sérfræðilækna
- Kennsla lækna í sérnámsgrunni, læknanema og annarra fagstétta heilbrigðisstarfsfólks
- Þátttaka í gæða- og vísindavinnu
- Sérnámslæknir ber sjálfur ábyrgð á fullri þátttöku í öllum þáttum sérnáms og skrásetningu þess í samræmi við marklýsingu og skráningarkerfi
- Framgangur milli námsára er ákvarðaður með árlegu framvindumati
- Hafa lokið sérnámi í heimilislækningum eða lyflækningum við upphaf sérnáms
- Íslenskt sérfræðilækningaleyfi
- Áhugi á að starfa við viðkomandi sérgrein
- Að lágmarki B2 tungumálafærni í íslensku, nema um annað hafi verið samið sérstaklega
- Fyrri starfsreynsla, reynsla af vísinda-, umbóta- og gæðastörfum æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
- Áreiðanleiki, stundvísi og árangursmiðað viðhorf






























































