Landspítali
Landspítali
Landspítali

Forstöðulæknir bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu

Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf forstöðulæknis bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu samkvæmt nýju skipuriti spítalans sem tók gildi 1. apríl 2024. Forstöðulæknir starfar innan bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu og leiðir lækningar innan sviðsins.

Innan bráða-, lyflækninga- og endurhæfingaþjónustu eru sérgreinar bráðalækninga og utanspítalaþjónusta, endurhæfingarlækningar, gigtlækningar, húð- og kynsjúkdómalækningar, innkirtlalækningar, lungna- og svefnlækningar, lyflækningar, meltingalækningar, nýrnalækningar, taugalækningar, smitsjúkdómalækningar og öldrunarlækningar.

Hlutverk forstöðulæknis er að þróa þjónustu við sjúklinga innan bráða-, lyflækninga - og endurhæfingaþjónustu og vinna að samhæfingu við aðra starfsemi spítalans í samræmi við stefnu og starfsáætlun Landspítala.

Forstöðulæknir heyrir undir framkvæmdastjóra og er hluti af sviðsstjórn sem ber ábyrgð á stefnumótun og rekstri. Forstöðulæknir leiðir ásamt forstöðuhjúkrunarfræðingi teymi framlínustjórnenda, þ.e. yfirlækna og deildarstjóra, sem hafa það sameiginlega verkefni að samhæfa, efla og þróa þá þjónustu sem veitt er á öruggan, faglegan og hagkvæman hátt. Forstöðulæknir ber ríkar og gagnkvæmar skyldur til samvinnu, samráðs og uppbyggingar teymisvinnu.

Leitað er að kraftmiklum leiðtoga, með klínískan bakgrunn, sem hefur brennandi áhuga á að vinna að því að byggja upp sterka liðsheild og að framfylgja stefnu, markmiðasetningu og framtíðarsýn spítalans.

Um er að ræða 100% starf. Auk stjórnunarhlutverks er gert ráð fyrir þátttöku í klínísku starfi í samráði við framkvæmdastjóra.

Education and requirements
Háskólamenntun í læknisfræði og sérfræðileyfi í lækningum er skilyrði
Önnur framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
Klínískur bakgrunnur er skilyrði
Reynsla af stjórnunarstörfum er skilyrði
Þekking á gæða- og öryggismálum í heilbrigðisþjónustu
Reynsla af að leiða umbótastarf, teymisvinnu og breytingastjórnun í heilbrigðisþjónustu
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð
Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
Hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Responsibilities
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun lækninga í samstarfi við framkvæmdastjóra lækninga, yfirlækna og framkvæmdastjóra þjónustunnar
Forysta um þjónustu við sjúklinga og þróun lækninga
Samhæfing þjónustu og flæðis þvert á spítalann
Efling mennta- og vísindastarfs
Forysta um uppbyggingu öryggismenningar, gæða- og umbótastarfs og árangursvísa
Uppbygging mannauðs og liðsheildar, ásamt ábyrgð á starfsmannamálum
Ábyrgð á fjármálum og rekstri þjónustunnar auk þátttöku í gerð fjárhagsáætlunar
Stefnumótun, markmiðasetning, áætlanagerð og eftirfylgni
Þátttaka í þróun og nýsköpun
Samhæfing faglegra verkefna innan sviðs og í samvinnu við önnur svið
Klínísk störf í samræmi við menntun og sérsvið
Advertisement published5. September 2025
Application deadline15. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Fossvogur, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (50)
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild/ dagdeild gigtar
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á næturvaktir - Vöknun Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur/ teymisstjóri - Endómetríósuteymi Landspítala
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á blóð- og krabbameinslækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðadagdeild lyflækninga B1 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðanemar á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 1.- 4. ári - hlutastörf með námi á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraþjálfari á Landspítala við Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Snorrabraut
Landspítali
Landspítali
Blóðbankinn auglýsir eftir náttúrufræðingi með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Læknar í sérnámsgrunni á Íslandi
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur í kerfisrekstri í Microsoft-umhverfi
Landspítali
Landspítali
Sérfræðinám í hjúkrun og ljósmóðurfræði á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Vöknun Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Umönnunarstörf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Sjúkraliði með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Lyfjatæknir
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ljósmóðir með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarnemi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ritara- og skrifstofustörf
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Almenn störf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður í móttöku, svefnmiðstöð í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á Sjúkrahóteli
Landspítali
Landspítali
Kennslustjóri sérnáms í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Kennslustjóri sérnáms í skurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á Líknardeild
Landspítali
Landspítali
Ert þú sjúkraliðaneminn sem við leitum eftir?
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður hjá geislameðferð krabbameinsþjónustu
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður - Lyflækningar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Lyflækningar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á legudeild geðrofssjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Gæðastjóri Veitingaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Skrifstofustarf hjá ræstingaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðarmaður talmeinafræðinga á endurhæfingardeild Grensási
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á öldrunarlækningadeild K1
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild
Landspítali
Landspítali
Líffræðingur - sameindameinafræði - meinafræðideild
Landspítali
Landspítali
Talmeinafræðingur óskast á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Tæknilegur vöru- og verkefnastjóri hugbúnaðarlausna
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild (SVEID)
Landspítali
Landspítali
Auglýst eftir almennum læknum á Sýkla- og veirufræðideild (SVEID)
Landspítali
Landspítali
Kennslustjóri sérnáms í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar í útkallsteymi yfirsetu
Landspítali
Landspítali
Sálfræðiþjónusta - Sálfræðingur í áfallateymi geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Svæfingahjúkrunarfræðingur - Svæfingadeild Hringbraut
Landspítali