Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Starf sérfræðings í málefnum barna

Verkefni sérfræðings í málefnum barna er að veita sáttameðferð til aðstoðar við lausn ágreiningsmála vegna barna, veita ráðgjöf, liðsinni og álit m.a. vegna umgengni, forsjár eða búsetu barna, eiga viðtöl við börn, hafa eftirlit með umgengni og veita ráðgjöf til uppkominna ættleiddra.

Sérfræðingur í málefnum barna annast sáttameðferð þegar foreldrar deila um umgengni, forsjá eða búsetu barna í málum hjá sýslumönnum. Við sáttameðferð er beitt viðurkenndum aðferðum til að leita sátta í ágreiningsmálum innan marka barnalaga. Sérfræðingur veitir einnig foreldrum og börnum sérfræðiráðgjöf í málum barna hjá sýslumönnum er varða umgengni, forsjá, búsetu og stöðu barns við fráfall foreldris. Sérfræðingur sinnir viðtölum við börn og hefur eftirlit með umgengni við börn. Sérfræðingur veitir liðsinni við meðferð máls á grundvelli barnalaga hjá sýslumanni, sem getur meðal annars falist í að rannsaka hvaða tilhögun umgengni er barni fyrir bestu og setja fram álit og mat á því. Þá er veitt ráðgjöf til uppkominna ættleiddra.

Vinna sérfræðings er unnin í samstarfi teymis sérfræðinga í málefnum barna og lögfræðinga sýslumanna. Í boði er krefjandi og gefandi starf á vinnustað þar sem áhersla er lögð á virðingu, traust og samvinnu.

Teymi sáttamanna og sérfræðinga í málefnum barna er starfar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu veitir þjónustu við öll sýslumannsembætti og sinna verkefnum á landsvísu á grundvelli barnalaga nr. 76/2003.

Starfsstöð er á Akureyri á starfsstöð Sýslumannsins á Norðurlandi eystra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita þjónustu við öll sýslumannsembætti á landsvísu er varðar mál skv. barnalögum.
  • Aðstoða foreldra við úrlausn ágreiningsmála, veita ráðgjöf og liðsinni.
  • Álit og mat, m.a. á því hvaða umgengni er barni fyrir bestu.
  • Sáttameðferð vegna ágreinings varðandi m.a. umgengni, forsjá eða búsetu barna.
  • Sérfræðiráðgjöf vegna málefna barna.
  • Viðtöl við aðila máls, foreldra og börn.
  • Skýrslur og rökstuddar greinargerðir um ágreiningsmál er varða börn.
  • Eftirlit með umgengni.
  • Ráðgjöf til uppkominna ættleiddra.
  • Starfinu fylgja nokkur ferðalög.
  • Teymisvinna sérfræðinga og löglærðra fulltrúa í málum skv. barnalögum.
    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Háskólapróf til starfsréttinda í sálfræði, félagsráðgjöf eða sambærilegum greinum.
    • Menntun á sviði sáttameðferðar eða sáttamiðlunar eða umtalsverð starfsreynsla á því sviði eða fjölskyldumeðferðar.
    • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna undir álagi.
    • Að hafa unnið að lágmarki í tvö ár við meðferð mála þar sem reynir beint á hagsmuni barna og/eða foreldra.
    • Að hafa haldgóða þekkingu á ákvæðum barnalaga og þeim helstu álitaefnum sem reynir á við túlkun þeirra.
    • Færni til að geta unnið sjálfstætt sem og í hópi með skipulögðum og öguðum vinnubrögðum.
    • Færni í mæltu og rituðu máli á íslensku og ensku.
    Fríðindi í starfi

    Heilsustyrkur, samgöngustyrkur.

    Advertisement published5. September 2025
    Application deadline22. September 2025
    Language skills
    IcelandicIcelandic
    Required
    Advanced
    EnglishEnglish
    Required
    Intermediate
    Location
    Akureyri
    Type of work
    Skills
    PathCreated with Sketch.Social workerPathCreated with Sketch.Psychologist
    Professions
    Job Tags