Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Starf þroskaþjálfa með sérþekkingu á þjónustu við fatlað fólk.

Þann 1. janúar sl. tóku sýslumenn við verkefnum varðandi val á persónulegum talsmönnum fyrir fatlað fólk, á grundvelli laga nr. 88/2011.

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu leiðir starf sýslumanna við hið nýja verkefni um persónulega talsmenn.

Teymi sáttamanna og sérfræðinga í málefnum barna er starfar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu veitir þjónustu við öll sýslumannsembætti og sinna verkefnum á landsvísu á grundvelli barnalaga nr. 76/2003.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð sérfræðings vegna persónulegra talsmanna

  • Viðtöl við fatlað fólk sem hefur óskað eftir persónulegum talsmanni, með það að markmiði að kanna vilja fatlaðs einstaklings.
  • Viðtöl við þjónustuveitendur og aðstandendur, ef vafi leikur á um vilja fatlaðs einstaklings varðandi val á talsmanni.
  • Álit og mat á því vort vilji hins fatlaða um val á talsmanni og um verkefni honum falin, hafi komið fram.
  • Skýrslur og rökstuddar greinargerðir um niðurstöður viðtala.
  • Teymisvinna með hópi sérfræðinga á fjölskyldusviði embættisins.
  • Vinna við faglega þróun verkefnis sýslumanna vegna persónulegra talsmanna.
  • Starfinu fylgja ferðalög á starfsstöðvar annarra sýslumanna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf til starfsréttinda sem þroskaþjálfi eða annarri sambærilegri grein.
  • Umtalsverð starfsreynsla af þjónustu við fatlað fólk.
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna undir álagi.
  • Að hafa unnið að lágmarki í tvö ár við meðferð mála þar sem reynir beint á hagsmuni fatlaðs fólks.
  • Haldgóð þekking á ákvæðum laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk og þeim helstu álitaefnum sem reynir á við túlkun þeirra.
  • Færni til að geta unnið sjálfstætt sem og í hópi með skipulögðum og öguðum vinnubrögðum.
  • Færni í mæltu og rituðu máli á íslensku og ensku.
  • Færni í samskiptum með fjölbreyttum samskiptaleiðum.
  • Kostur að starfsmaður geti einnig unnið að sáttameðferð og verkefnum sérfræðings í málefnum barna samkvæmt barnalögum.
Fríðindi í starfi

Heilsustyrkur, samgöngustyrkur, niðurgreitt mötuneyti

Advertisement published5. September 2025
Application deadline22. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Hlíðasmári 1, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags