Leikskólinn Hagaborg
Leikskólinn Hagaborg
Leikskólinn Hagaborg

Leikskólakennari / leiðbeinandi

Hagaborg er staðsett á þremur starfstöðvum fram á vor. Við erum að leita eftir leikskólakennara / leiðbeinanda á Barónsborg, Njálgötu 70.

Við leitum að skapandi og áhugasömu fólki með leikskólakennaramenntun, reynslu, þekkingu til að vinna með ungum börnum.

Okkur vantar starfsmann á yngstu og miðdeildinda okkar.

Starfið í leikskólanum Hagaborg er fjölbreytt og skemmtilegt og enginn dagur er eins en á hverjum degi getum við sameinast um að leggja dýrmætan grunn að þekkingu og þroska barna. Við leikskólann er starfrækt sérkennsludeild.

Einkunnarorð leikskólans eru virðing, vinátta og hugrekki. Unnið er með vináttuverkefni Barnaheilla. Þá hefur löngum verið lögð áhersla á málrækt og hreyfingu í Hagaborg. Í Hagaborg er gott að vera og andrúmsloftið einkennist af sveigjanleika, samkennd og virðingu.

Starfið er tímabundið frá 5. september til 28. febrúar en þó með möguleika á framlengingu á öðrum starfsstað borgarinnar, Grandaborg.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • · Viðkomandi vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t:
  • • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna skv. starfslýsingu leikskólakennara.
  • • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
  • • Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk.
  • • Hafa samskipti og samvinnu við foreldra í samstarfi við deildarstjóra.
  • • Sinna öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • ·Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, sálfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði - Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum

 

Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Menningarkort – bókasafnskort
Advertisement published5. September 2025
Application deadline26. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Njálsgata 70, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal record
Work environment
Professions
Job Tags