
Hjallastefnan
Hjallastefnan er kærleiksmiðuð og skapandi lýðræðisstefna. Hjallastefnan rekur í dag 14 leikskóla og þrjá grunnskóla.
Drifkrafturinn í rekstri Hjallastefnunnar er sú skólahugsjón sem allt starf Hjallastefnunnar byggir á. Starfsfólk fyrirtækisins trúir því staðfastlega að starf þeirra skipti miklu máli og að það eigi með vinnu sinni þátt í því að skapa betri framtíð fyrir börn þessa lands.
Jafnréttisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir í námskrá Hjallastefunnar sem við teljum að geti skipt sköpum í þroska þeirra einstaklinga sem okkur er treyst fyrir. Einnig er trú okkar að öflugt fyrirtæki í sjálfstæðum skólarekstri geti skapað nýjungar og unnið að tilraunaverkefnum sem veiti hinu opinbera kerfi nauðsynlegt og tímabært aðhald í því að efla fagstarf sitt og þjónustu – öllum börnum til hagsbóta.
Skólar Hjallastefnunnar starfa sjálfstætt undir stjórn síns leik- eða grunnskólastjóra sem hefur yfirumsjón með og ber ábyrgð á daglegum rekstri skólans. Þannig hefur hver skóli sitt eigið andrúmsloft og sína eigin menningu en allir starfa þeir þó að sameiginlegu markmiði og eftir sömu námskrá sem liggur til grundvallar öllum þáttum fagstarfsins.

Hjallastefnu leikskólinn Litlu Ásar við Vífilsstaði óskar eftir nýju samstarfsfólki
Við starfsfólkið á Litlu Ásum leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstaklingum sem reiðubúnir eru að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar. Okkar gildi eru kærleikur, sköpun og lýðræði í lífsmáta og starfi. Við leggjum sérstaklega mikið upp úr því að jákvæðni og gleði einkenni öll samskipti við börn, fjölskyldur þeirra og hvort við annað.Sérstaklega leitum við að framtíðarsamstarfsfólki sem brennur fyrir því að læra og leika.Litlu Ásar er lítill leikskóli staðsettur í náttúruperlunni við Vífilsstaði, þar sem við nýtum náttúruna og náttúrlegan efnivið í öllu starfi með börnunum. Lögð er áhersla á sköpunargleði og ímyndunarafl í leik og starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að elska og bera virðingu fyrir börnum
- Að vinna af ástríðu að uppeldi og menntun ungra barna
- Að horfa á dag hvern sem ævintýr
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun
- Önnur uppeldismenntun - leikskólaleiðbeinandi
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Good Icelandic language skills required
- Reynsla af vinnu með börnum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi
- Útivist í dásamlegu umhverfi
- Frítt hollt fæði
- Vinnufatnaður
- Vinnustytting
- Þjálfun í starfi
- Einstakur hópur samstarfsfólks sem tilheyrir lærdómssamfélaginu sem er Hjallastefnan
Advertisement published5. September 2025
Application deadline29. September 2025
Language skills

Required
Location
Vífilstaðavegur 118
Type of work
Skills
Clean criminal recordCreativityHuman relations
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Umsjónarkennari 1. bekkjar í afleysingu skólaárið 2025-2026
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri

Skólaliði og frístundarleiðbeinandi í Kópavogsskóla
Kópavogsskóli

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli

Leikskólinn Mánahvoll auglýsir eftir leikskólakennara
Ungbarnaleikskólinn Mánahvoll

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Hagaborg

Leiðbeinandi óskast í leikskólann Nóaborg - 36 stunda vinnuvika
Leikskólinn Nóaborg

Aðstoðarleikskólastjóri
Leikskólinn Austurborg

Frístundaleiðbeinandi í Snælandsskóla
Snælandsskóli

Náms- og starfsráðgjafi Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Skóla- og frístundaliði - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Stuðningsstarfsmenn óskast í hlutastörf
Frístundamiðstöðin Miðberg

Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur
Kringlumýri frístundamiðstöð