Lækur
Lækur
Lækur

Starfsmaður í sérkennslu

Leikskólinn Lækur óskar eftir leikskólakennara, þroskaþjálfa eða háskólamenntuðum starfsmanni með aðra sambærilega menntun til starfa við sérkennslu. Helstu verkefni eru að veita börnum með sérþarfir leiðsögn og stuðning.

Lækur er sex deilda leikskóli staðsettur í Kópavogsdal þar sem stutt er í góð og skemmtileg útivistarsvæði á öllum árstímum. Í Læk er unnið með lýðræðislega nálgun í starfi með börnum.

Starfshlutfall er 100% og óskað er eftir að viðkomandi hefji störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Athygli er vakin á því að Kópavogsbær hefur samþykkt 6 tíma gjaldfrjálsan leikskóla ásamt auknum sveigjanleika og takmörkunum í opnunartíma leikskóla í dymbilbiku, milli jóla og nýars og vetrarfríum. Hér má sjá meira um það Sex tíma gjaldfrjáls leikskóli og aukinn sveigjanleiki | Kópavogsbær (kopavogur.is)

Einkunnarorð leikskólans eru: Sjálfræði, umhyggja og virðing.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðningur við börn með sértækar þarfir
  • Gerð og eftirfylgni einstaklingsnámsskrár í samráði við sérkennslustjóra
  • Samvinna með foreldrum, ráðgjöfum og öðru starfsfólki
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af leikskólastarfi æskileg
  • Reynsla af sérkennslu kostur
  • Góð samskiptahæfni
  • Færni og vilji til að vinna samkvæmt einstaklingsnámskrám í teymisvinnu
  • Hæfni til að beita lausnamiðaðri nálgun við úrvinnslu verkefna
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Ef ekki fæst þroskaþjálfi / leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi
Advertisement published9. September 2025
Application deadline25. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Dalsmári 21, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags