Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Náms- og starfsráðgjafi - Félagsráðgjafi

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir náms- og starfsráðgjafa eða félagsráðgjafa til þess að starfa með nemendum. Í skólanum eru um 450 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 90 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu.
Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda menntastefnu Garðabæjar. Læsi skipar stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að standa vörð um nám og velferð nemenda
  • Að vera trúnaðarmaður og talsmaður nemenda
  • Að veita ráðgjöf varðandi samskipti, líðan og ástundun
  • Að sitja í nemendaverndarráði og vinna með öðrum fagaðilum
  • Að stýra samskiptateymi skólans og vinna með samskiptamál
  • Að taka þátt í forvarnarverkefnum skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi eða starfsréttindi sem félagsráðgjafi
  • Reynsla af starfi með börnum
  • Áhugi á og þekking á vinnu með félagsfærni nemenda
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Ábyrgðarkennd, sveigjanleiki og skipulagshæfileikar
  • Faglegur metnaður
Fríðindi í starfi

Starfsmenn sveitarfélagsins fá hreyfistyrk, frítt í sund, á bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands. Þá hefur starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.

Advertisement published9. September 2025
Application deadline18. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Skólabraut 5, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags