

Í sól og sumaryl í Bríetartúni
Einn sólríkasti staður höfuðborgarinnar óskar eftir að ráða inn stuðningsfulltrúa í vaktavinnu í sumar á íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í miðborg Reykjavíkur. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem gleðin er ávallt í fyrirrúmi og frábær starfsandi ríkir.
Velferðarsvið óskar eftir að ráða metnaðarfulla starfsmenn á íbúðakjarna fyrir geðfatlaða í Bríetartúni í sumar með möguleika á áframhaldandi starfi eftir sumarið. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaðan stuðning, þar sem unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf og batamiðaða nálgun. Markmið þjónustunnar er að mæta þörfum íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt með áherslu á valdeflingu og aukin lífsgæði. Lögð er áhersla á gott starfsumhverfi, heilsueflingu og sveigjanleika í starfi.
Um er að ræða 80% - 100% vaktavinnu, og er unnið á blönduðum dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Starfið er laust frá miðjum maí 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
- Einstaklingsmiðaður stuðningur til sjálfshjálpar og samfélagslegrar þátttöku og virkni.
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum í samráði við deildarstjóra og forstöðumann.
- Stuðningur við ýmis dagleg verkefni líkt og heimilisþrif, matarinnkaup og veita félagsskap.
- Unnið eftir stefnu Reykjavíkurborgar í þjónustu við fatlað fólk.
- Góð almenn menntun.
- Íslenskukunnátta B1-2 (samkvæmt samevrópskum matsramma um tungumálaviðmið).
- Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum æskileg.
- Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuaðstæður.
- Sveigjanleiki, metnaður og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Viðkomandi þarf að vera orðinn 20 ára.
- Hreint sakarvottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Hjá Reykjavíkurborg er unnið samkvæmt betri vinnutíma í vaktavinnu og eftirfarandi hlunnindi eru í boði fyrir starfsfólk: Sjá hlunnindi































