

Félagsliði eða sjúkraliði óskast í hlutastarf
Heimaþjónusta Reykjavíkur óskar eftir félagsliða eða sjúkraliða í 40% til 60% starf við að veita einstaklingum með heilabilun stuðning.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar býður upp á þjónustu fyrir einstaklinga með heilabilun til þess að létta undir með aðstandendum.
Um leið og hinum heilabilaða einstaklingi er veittur stuðningur gefst aðstandendum kostur á að fara út af heimilinu og sinna hugðarefnum sínum með vissu um að ástvinur hans er í góðum höndum.
Með þessum stuðningi verndum við heilsu allra aðila heimilisins/fjölskyldunnar.
Heimaþjónustan veitir þjónustu inn á heimilum notenda. Verkefni starfsmanna eru að vera einstaklingnum innan handar og gera með honum það sem honum finnst skemmtilegt og kýs að gera hverju sinni. Taka þarf tillit til heilsufars þess heilabilaða og oft þarf mikla hvatningu og stuðning frá starfsmanni.
- Félagsliða- eða sjúkraliðamenntun skilyrði
- Reynsla af heimaþjónustu eða umönnunarstörfum æskileg
- Þekking á heilabilunarsjúkdómum æskileg
- Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Vandvirkni og sjálfstæði í starfi
- Jákvætt og lausnarmiðað viðhorf
- Viðkomandi þarf að vera eldri en 18 ára
- Ökuréttindi B
- Íslenskukunnátta á bilinu C1 til C2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Sundkort hjá Reykjavíkurborg
- Menningarkort hjá Reykjavíkurborg
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur






























